Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1986, Qupperneq 6
EFMISyFIRLIT
6 VÍKINGUR
1
Vinirnir
mætti kannski kalla forsíöu-
myndina, sem Jónas Þor-
leifsson háseti á Sögu tók
suður i Miðjarðarhafi og færöi
Vikingnum til birtingar. Höfr-
ungarnir tveir fylgdu skipinu
dágóða stund og léku listir
sinar, áhöfninni til óblandinn-
ar ánægju. Sá dökki er í
stökki ofan sjávar en hinn er
undir yfirboröinu þegar
myndin er tekin. Sjórinn er
spegilsléttur, enda speglast
skipið i fletinum, en myndin er
tekin fremst frammi á skipinu
og beint niður.
5
Leiöarann
skrifar Ragnar G.D. Her-
mannsson og þar er að venju
tekið á málefnum stéttar-
innar.
8
Þetta er einstök
veröld...
Viðtal við forseta FFSÍ og al-
þekkta aflakló, Guðjón A.
Kristjánsson. Sigmundur
Ernir Rúnarsson hefur nú
bæst í það úrval góðra penna
sem skrifa fyrir Víkinginn og
rabbar við Guðjón — eða
Adda Kitta Guj — um hafið,
pólitík og prívatmál.
18
Nýjungar
i umsjá Benedikts Alfonsson-
ar segja meðal annars frá
nýju stýri sem sýnt var í
fyrsta sinn á Nor-fishing i
Þrándheimi í ágúst s.l.
22
Nor-Fishing,
sjávarútvegssýningin, sem
haldin er annaðhvert ár i
Þrándheimi er orðin ein af
stærstu sýningum heimsins á
sinu sviði. I sumar voru flutt
þar fjölmörg erindi um
ýmsa þætti sjávarútvegs.
Björn G. Jónsson liffræöingur
þýddi, stytti og endursagði
nokkur þessara erinda fyrir
Vikinginn.
28
Notkun ensíma í
sjávarútvegi.
Kristján Jóakimsson útvegs-
fræðingur skrifar fróölega
grein um efnið.
34
Erum að festast í
kvótanum.
Bolli Héðinsson hagfræðing-
ur skrifar um kosti og galla á
bráðabirgðalausn sem virðist
vera orðin að framtiöar skipu-
lagi.
38
Frívaktin.
Alli annar stýrimaður fór með
fjórar piur af skrifstofunni i
sumarbústað. Og hvað svo
???
40
Afli viö festar.
Þorvarður Árnason mennta-
skólakennari fer litið á sjó, en
hann er áhugasamur afla-
maður þegar skip liggja við
festar. Hans afli er Ijósmynd-
ir. Sjáiö sjálf árangurinn.
42
Aldrei má eftirgefa.
Magnús Jóhannesson sigl-
ingamálastjóri lætur öryggi
sjófarenda mikið til sín taka,
eins og vera ber. Hann segir
frá ýmsu sem nú er efst á
baugi i þeim efnum i viðtali
við Sigurdór Sigurdórsson
blaöamann, og hver siða er
þrungin fréttnæmu efni.