Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1986, Page 8
ÞETTA ER
EINSTÖK
VERÖLD
Guöjón A.
Kristjánsson, þekkt
aflakló og forseti
FFSÍ talar um hafiö,
pólitík og
persónuleg mál í
sfmarabbi viö
Sigmund Erni
Rúnarsson
blaöamann.
ÞARNA ÚTI FYRIR
Viðtal:
Sigmundur
Ernir
Rúnarsson
blaöamaöur
Ljósmyndir:
Róbert S.V.
Miguel o.fl.
8 VÍKINGUR
Páll Pálsson ÍS 102 lagöist aö bryggju viö ísafjaröarkaupstaö
um sjöleytið sama dag og þetta viðtal var tekið viö Guöjón A.
Kristjánsson. Skipstjórinn var helsti ómyrkur í máli þegar spurt
var um aflann meðferðis: „Æ, þetta var slappt. Níutíu tonn af
þorski“, dæsti hann. „En maður getur heldur ekki búist við svo
miklu þegar viö fjórar áttir er að eiga á sama sólarhringnum“,
og svo bætti hann bölvi við um vindinn.
Annars ragnaði hann ekki mikið í samtalinu sem fylgdi á eft-
ir, en talaði þess í stað af festu og ákveðni, kaus meiningum
sínum skrúðlausar og skorinorðar setningar. Blátt áfram, ein-
lægur og öðru hverju þungt hugsi, enda er auðheyrt að mann-
inum stendur ekki á sama um hvernig hann segir hlutina. En
hann er líka sagður verða æði harður á brún og óvæginn í orð-
um, þyki honum viðsemjendur eða andstæðingar fara fram af
ósanngirni. Heima á ísafirði þekkja hann allir undir nafninu
Addi Kitta Guj.