Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1986, Qupperneq 35
kvótanum
Hið alsjáandi auga fylg-
ist með hverju skipi, til
að varna þvi veiöi um-
fram sinn kvóta.
fyrir . „reddinga“-vagninn,
enda þeir sú stétt manna,
sem einna liklegastir eru til
aö hafa afskipti af málum,
sem heyra alls ekki undir
verksviö þeirra. Þaö er ekki
fyrr en á allra siðustu timum
aö þaö er loks oröið svo, aö
menn komast ekki upp meö
hvaö sem er i útgerö, frekar
en annarri starfsemi, og jafn-
vel er fariö aö bjóöa upp skip,
sem heföi þótt óhugsandi fyr-
irfáeinum árum.
En er til þaö skipulag á is-
lenskum sjávarútvegi, sem
getur látið útveginn ganga án
of náinna afskipta hins opin-
bera af rekstrinum? Skil-
greina veröur þaö sem einfalt
meginmarkmiö, aö til þess aö
sjósókn verði sem arðbærust
fyrir þjóöarbúiö i heild veröur
aö veiöa þann afla, sem
hagkvæmt er að vinna, meö
eins fáum skipum og nokkur
er kostur. Til aö ná þessu
markmiði er i reynd ekki um
margar leiðir aö velja.
Hér kemur til kvótakerfið,
sem nú er viö lýði, og skekkir
talsvert þá framtiöarsýn, sem
viö ættum aö geta gefið okk-
ur um aröbæra útgerð. Þvi
miður virðist sem svo, aö
menn séu aö „festast'1 í
kvóta, þ.e. að menn séu farnir
aö sætta sig viö bráðabirgða-
lausnina sem viðvarandi
framtiöarskipulag. Ljóst má
hinsvegar vera, aö til lengri
tíma litið dregur kvótinn úr
hagkvæmni, þar sem veiði-
geta flotans er nú langt um-
fram aflamagn og haldiö er til
veiða mun fleiri skipum en
þarf, til aö ná hinu setta
marki.
Þegar kvótanum
sleppir
Ekki er seinna vænna aö
fara aö huga að þvi, hvernig
megi meö bestu móti vinna
sig frá kvótanum og þeim
takmörkunum sem beitt hefur
veriö hin siöari ár. Umræöa
um hvað taki viö að afloknum
kvóta er enn ekki hafin né
heldur leitin aö leiöum sem
búið geta útgerö skilyrði til
hagkvæmra veiða um ókomin
ár.
Dr. Rögnvaldur Hannes-
son, prófessor i fiskihagfræði
viö viðskiptaháskólann i
Bergen, viðraði nýstárlegar
hugmyndir er hann var hér á
ferö i desember i fyrra. Þar
leyfir hann sér frumlega
hugsun og vangaveltur um
grundvallaratriöi, munaö sem
viö höfum allt of lengi neitað
okkur um. Umhugsunarefni af
þvi tagi, sem erfitt er aö finna
staö i dægurþrasinu.
Rögnvaldur stakk upp á
því, aö leyfðum hámarksafla
viö Island yröi skipt niður á
alla núlifandi Islendinga og
fengju þeir bréf upp á það,
sem þeir gætu hagnýtt sér aö
vild. Næsta skref yrði, aö
menn reyndu annaöhvort að
veiöa þann afla, sem þeir
heföu bréf upp á, eöa þaö
VÍKINGUR 35