Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1986, Síða 42

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1986, Síða 42
Sigurdór Sigurdórsson blaðamaöur Ljósmyndir: Róbert o.fl. 42 VÍKINGUR Aldrei má gefa eftir þá sofna menn á verðinum Rætt við Magnús Jóhannesson siglingamálast jóra um fjölmargar breytingar sem eru að verða í öryggis og slysavörnum á sjó. Öryggismál sjómanna hafa mjög verið í brennidepli síðustu misserin og það hef- ur ekki bara verið látið sitja við orðin tóm. Margt afar athyglisvert hefur verið framkvæmt í þeim efnum og enn fleira er á döfinni. Magnús Jóhannesson siglinga- málastjóri, sem eðli málsins samkvæmt vinnur mest að öryggismálum sjómanna, er nýkominn af fundi Alþjóöa siglingamálastofnunarinnar, þar sem fundað var um öryggismál sjómanna í siglingaöryggisnefnd stofnunarinnar. Fundir í þeirri nefnd eru haldnir á 8 mánaða fresti. í tilefni þessa fór tíðindamaður Víkingsins á fund Magnúsar og ræddi við hann um þennan fund, sem og annað er varðar öryggismál- in. Fjarskiptabylting „’l siglingaöryggisnefndinni koma til afgreiöslu mál sem varða öryggi skipa og áhafna frá einum átta undirnefndum sem starfa undir þessari nefnd og vinna á milli funda.“ — Hvaö var merkast til umræöu aö þessu sinni? „Aö sjálfsögöu var fjöl- margt til umræöu á fundinum og alltaf matsatriði hvaö telja skal merkast mála. Þó hygg ég fjarskiptamálin megi telja þaö merkilegasta. Þar er búiö aö taka ákvarðanir um stefnumarkandi breytingar á fjarskiptamálum skipa. Mors- iö, sem neyðarfjarskipti skipa hafa byggst á um langan ald- ur, eöa allt frá árinu 1914, veröur lagt af og í staöinn kemur til hagnýtingar hin nýja gervitunglatækni. Á síöasta fundi var verið að ræöa aö- lögun skipa aö þessu nýja kerfi. Einhver aölögunartími er aö sjálfsögöu nauðsynleg- ur, en ég tel, og þaö eru fle.iri á því, aö þessi breyting þurfi að ganga sem allra hraöast fyrir sig sökum þess aö sam- ræming í þessum málum yfir allan heiminn er bráönauö- Baujan sem fest er utan á skipiö og flýtur upp ef skipið ferst. Eft- ir örfáar minútur eru boð komin til strandstöðva um gervihnött, um að skipiö hafi farist og hvar. synleg. Inni þetta kemur aö menntun þeirra manna sem sjá munu um fjarskiptin verð- ur önnur en verið hefur hjá loftskeytamönnum. Þaö þarf því tima til aö mennta þessa menn upp.“ — Hvernig mun þetta nýja fjarskiptakerfi virka? „í sem stystu máli má segja aö venjulegar strand- stöövar sem taka viö boðum frá gervitunglum, svipaðar og Skyggnir, munu taka beint viö boöum frá skipum sem eru nærri landi. En um leið og þau eru komin fjær, fara boö- in i gegnum gervitungl. Þetta eru hin almennu fjarskipti. En hvaö varðar neyöarfjarskipti, þá er þar um nýjung aö ræða. Hvert skip verður útbúið sér- stakri bauju, sem flýtur sjálf- virkt upp ef skip ferst. Baujan sendir þegar frá sér neyöar- merki uppí gervihnött og þaö- an þerast svo þoöin til næstu strandstöðvar. Og ekki bara

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.