Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1986, Page 46
Fjárfestingar i auknu
öryggi skila sér meö
góöum arði til samfé-
lagsins.
46 VÍKINGUR
Mdrei má...
Fjárfestingar í auknu öryggi
&
þjóðhagslegur sparnaður
(Núvirði fjárfestingar)
landi og i mörgum tilvikum
höfum við gengið lengra en
segir í samþykktinni."
„Mig langar aðeins að
minnast á atriði sem varðar
fjarskiptamálin sem við vor-
um að ræða áöan, en það er
samþykkt frá 1979 um leit og
þjörgun. I þeirri samþykkt er
gert ráð fyrir því að þjóðir
heims skipti með sér haf-
svæðinu og hafi uppi strand-
stöðvar, sem taki við boðum
frá skipum í háska og sendi
þau út til nærstaddra skipa.
Við islendingar erum ekki
aðilar né höfum staðfest
þessa samþykkt, og erum
eina þjóðin á N-Atlandshafi
sem ekki hefur staðfest sam-
þykktina. Þessu er auðvitað
sinnt hér á landi, en formlega
séð er þarna gat, meðan við
ekki staðfestum samþykkt-
ina. Ég tel mikla nauðsyn
bera til að við staðfestum
hana i Ijósi þeirra fjarskipta-
breytinga sem við vorum að
ræða um áðan og eiga að
koma til framkvæmda eftir 4
ár. En til þess að við getum
staðfest hana verða þeir aðil-
ar hér á landi sem sjá um leit
og björgun að koma sér sam-
an um samræmda stefnu i
þessum málum. Hér er um að
ræða Slysavarnafélagið,
Póst og síma og Landhelgis-
gæsluna. Ég veit að þetta er
viðkvæmt mál hér á landi en
það gengur ekki lengur að við
tökum ekki þátt i sameigin-
legum aðgerðum á þessu
sviði.“
Öryggi mannslífa
á hafinu
„Þann 1. júli sl. tók gildi
þriðji kafli alþjóðasamþykkt-
ar, sem nefnist SOLAS og
fjallar um breytingar á björg-
unar- og öryggisbúnaði fyrir
kaupskip. Við erum aðilar að
þessari samþykkt og þurfum
því að fara eftir henni. Þarna
er um að ræða fjölda nýrra
ákvæða, sum koma til fram-
kvæmda strax, en önnur gilda
fyrir ný skip, og enn önnur
koma seinna til framkvæmda.
Atriði sem koma til fram-
kvæmda strax eru m.a. um
þjálfun áhafna. Þar má nefna
til neyðaráætlun, öll skip eiga
nú að vera komin með hana.
Þá á að framkvæma reglu-
bundið eftirlit með öllum
björgunar- og öryggisbúnaði
um borð í skipunum og að
halda reglulega björgunar-
æfingar um borð. Að þessu
öllu er nú unnið af kappi hjá
kaupskipafélögunum. í sam-
þykktinni er gert ráð fyrir að
björgunarbúningar verði
komnir i öll kaupskip 1. júli á
næsta ári. Hér er um aö ræða
björgunargalla, sem halda
mönnum á floti ef skip sekkur
og eru þannig gerðir að menn
geta lifaö i 0 gráðu köldum
sjó i a.m.k. 6 klukkustundir,
slik er varmavörn þessara
búninga."
Fiskiskipin
— Viö höfum nú rætt all
mikiö um kaupskipin en
hvaö er nýtt í þessum málum
varöandi fiskiskipin?
„Nú, eins og kunnugt er, er