Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1986, Side 62

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1986, Side 62
Aftur undir norskan fána Höfundur: Karsten Stenland yfirstýrimaöur LPG/C Magellan Lesendabréfiö sem hér fylgir er þýtt úr félagsblaöi Skipstjórafélags Noregs (Norsk Skibsförertidende). Einn úr forustuliöi FFSÍ gaukaði því aö ritstjóra Vik- ingsins meö ósk um aö þaö yröi þýtt og birt. Aö sjálfs- ögöu er orðið viö slíkum óskum. Vafalaust gerir bréfiö rúmrusk einhvejrum þeirra sem sofa í fullvissu þess aö núverandi kerfi sé gott og óumbreytanlegt, einhverskonar nátt- úrulögmál. Jafn vafalítið sjá ein- hverjir skrattann i hverri línu bréfsins og umræöan verö- ur væntanlega mik- ii og málefnaleg. Vonandi sjáiö þiö, lesendur góöir, eöa a.m.k. einhverjir ykkar, ástæðu til aö skrifa blaöinu og láta skoðun ykkar í Ijós. Blaöiö mun fúslega birta þaö sem berst um þetta efni, meö venjulegum fyrir- vara um málefna- lega framsetningu. Ritstjóri. 62 VÍKINGUR Mikinn hluta verslunarflot- ans má reka meö aðeins átta manna áhöfn. En til þess verðum viö aö gleyma þvi algjörlega aö nokkru sinni hafi verið til þaö sem kallað er yfirmenn; stýrimenn, vél- stjórar, vélaveröir, brytar, matreiöslumenn og loft- skeytamenn. Skipin veröa rekin meö átta skipstæknum. Að minnsta kosti sex þeirra, en helst allir, skulu hafa réttindi þannig aö kröfunum sem fylgja „gömlu“ stööunum — skipstjóri, yfirstýrimaöur, 1. stýrimaöur, yfirvélstjóri, 1. vélstjóri og rafvirki — veröi fullnægt. Flestir þeirra skulu hafa réttindi á telex. Aö nokkrum tíma liðnum munu allir hafa réttindi sem sigl- ingafræðingar og vélstjórar. Allir eiga þeir kröfu til svip- aös vinnutíma, 12 — 15 tima á dag, sjö daga vikunnar. Lik- amleg vinna er sjálfsögö fyrir alla og aö undanteknum þeim störfum sem krefjast sér- þekkingar, sem skipsmenn hafa ekki allir, skulu allir ganga jafnt til allra verka. Hér á eftir tek ég sérstaklega miö af gastankskipi, þvi þau þekki ég best. Hver þessara átta skips- tækna á aö geta stjórnað kælikerfi lestanna, tekiö þátt í öllum störfum i vélarrúminu og gengið vaktir viö lestun og losun. Þegar búið er aö af- greiða skipsskjölin i landi og losun og ferming er komin vel i gang, annast skipstjórinn t.d. hluta þeirra starfa sem yfirstýrimaður gerir venju- lega. Á sjónum ganga tvö eöa þrjú liö vaktir i brúnni, allt eftir aöstæðum. Aö minnsta kosti tveir menn upþfylla kröfurnar, sem gerðar eru til kunnáttu rafvirkja um borö. Ef bilun veröur i vél, veröur einn maö- ur í brúnni en sjö í vélinni, allir vel til þess færir. Þegar lagt er að bryggju er einn maður i vél en þrir i brúnni, sem gegna störfum skipstjóra, stýrimanns og rórmanns. Þegar fyrsta trossan er kom- in i land verður skipstjóri einn eftir i brúnni. Aðalvél er stjórnað í vélarrúminu. VHF- tæki flytja samtöl milli brúar og vélarrúms og reyndar skulu allir átta áhafnarmeð- limir bera VHF-tæki. Kerfið verður að vera fullkomlega sveigjanlegt. Tveir menn verða á næturvakt. Þeir sem ekki sofa á daginn bera VHF- tækin, svo að til þeirra náist samstundis úrbrúnni. Lúkarana önnumst viö sjálfir. Eldhús- og borðstofu- vinna verður í lágmarki. Notkun á örbylgjuofnum verður aukin og sömuleiðis verða tilbúnir réttir mest not- aðir, þannig að hver getur fengið þann rétt hverju sinni sem hann langar mest i. Pappirsvinna verður sömu- leiöis skorin niður i það minnsta sem hægt er að komast af með. Bókhaldið fer á telexinn. Hlutfalliö milli siglingatima og fritíma í landi verður að vera 1 á móti 1. Siglingatim- inn veröi einn til tveir mánuð- ir, breytilegur eftir árstiðum, siglingaleiðum, vinnuálagi og öðru sem skiptir máli, i hvert sinni. Og launin. Sagt er að hver sjómaður skapi vinnu fyrir tvo menn í landi. Við viljum ekki taka á okkur þrældóm til þess að þessir tveir menn i landi haldi sínum störfum, nema fá eitthvaö i staðinn. Við viljum fá talsvert i staðinn. Við vilj- um skattfrelsi og áhættu- þóknun og við viljum fá lifeyr- isrétt 50—55 ára, meðal ann- ars. Laun veröi að meðaltali 110 — 140 þúsund krónur á mánuði á mann, svolitið mis- munandi eftir hvað menn hafa mikil starfsréttindi. Þetta kerfi tryggir endur- nýjunina. Sá sem fer til sjós verður að hafa haldgóða tæknimenntun. Sjómanna- skólarnir verða að taka þátt i þróuninni. Þegar sjómaður er heima, á hann að geta farið á endurhæfingarnámskeið eftir þörfum og hentugleikum. Menntunin verður sérhæfing, sem haldið er við og bætt við með stuttum námskeiðum öðru hverju, þegar menn eru i landi. Mikiö lærist líka i starfinu um borð. Kennslan á ekki að verða almenn fræðsla með ivafi af siglingafræði og vélfræði. Burt meö nám i tungumálum, stærðfræði, skósmiðahagfræði og annaö þess háttar. Það á maður að vera búinn að læra áður á öðrum skólum. Þessir átta menn geta siglt skipinu betur og öruggar en nú tiðkast á skipum undir út- lendum fánum, með 18 manna áhöfn, þar af 2 — 3 norska. Engin núverandi stéttarfé- lög geta kyngt þessu, þess vegna verðum viö að taka upp nýtt félagaskipulag. Margir sjómenn verða sjálfsagt á móti þessu. Það er skiljanlegt. Það verður mörg- um erfiðara og töluverð um- skipti. En við erum bestir. Sönn- um þaö enn einu sinni. Hefur samfélagið nokkru að tapa á þvi? Hver þorir og vill? Til eru sjómenn sem geta og vilja. Ef hægt er að græða peninga á því, eru til útgeröarmenn sem geta og vilja. Ríkið getur. En vill rikið? Navigare necesse est. Eða eins og Móses sagði: To sea or not to sea. (Þýðing: SV.)

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.