Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1988, Qupperneq 5

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1988, Qupperneq 5
RITSTJÓRNARGREIN Við íslendingar höfum orðið fyrirþví óláni, enn einu sinni, að fá yfir okkur góðæri. Afleiðingarnar eru jafnvel enn verri nú en oftast áður; útgerð og fiskvinnsla eiga í verulegum erfiðleikum, fjöldi verslana og annarra þjónustufyrirtækja eru gjaldþrota og ríkisstjórnin sagði af sér. Framundan blasir við óðaverðbólga með tilheyrandi vaxtaokri sem setur enn fleiri vinnuvéit- endur á hausinn, sem aftur skapar at- vinnuleysi sem með góðri aðstoð hávaxt- anna kemur fjölskyldunum í gjaldþrot — ef ekkert verður að gert. Fyrr á tíð var góðæri mikil gæfa. Þá bjuggu hyggnir búmenn í haginn fyrir mögru árin sem þeir vissu að hlutu að fylgja. Þeir báru ábyrgð á velferð fjöl- skyldu sinnar og vinnuhjúa. Oft var stór hópur manna, kvenna og barna á einu heimili sem heimilisfaðirinn veitti forsjá og bar ábyrgð á velferð þeirra. Oftast reis húsbóndinn undir þeirri ábyrgð, þess vegna lifði þjóðin aldirnar af, í gegnum góðæri og harðæri. Nú á tímum ber enginn neina ábyrgð, ekki í raun og veru, ekki einu sinni á af- komu sjálfs sín. Þess vegna er svo komið að góðærin eru okkur vond sending. Þegar góðæri gengur yfir þjóðina, mikill fiskur gengur á miðin, gæftir eru góðar og verð er hátt á mörkuðum, þá tryllist þjóðin öll. Fyrirtækjaeigendur hefja byggingu stórra viðskiptahalla, launþegarnir stækka við sig íbúðirnar, endurnýja bílana og fjölga þeim og skipta um teppi og hús- gögn. Fjárfestingargleðin veldur algleymi líkt og örvandi lyf og hvergi sést skýhnoðri á himni. Góðærið er komið og þá er um að gera að láta drauminn rætast, drauminn um að eiga mikið. Peningar eru hvar sem litið er og enginn vandi að fá lán, hvort sem er hjá bönkum eða seljendum draumsins og stofnuð eru sérstök „fjár- mögnunarleigufyrirtæki“ (þvílíkt orð) til að auðvelda fólki að hnýta sérhengingaról til nokkurra ára. Og því ekki það ? Nú ergóð- æri og nú er lag og ég ber ekki ábyrgð á framtíðinni. Ef eitthvað fer úrskeiðis heimta ég bara „aðgerðir" af ríkisstjórn- inni. Fyrstir til að verða varir við góðæri eru þeirsem veiða og vinna sjávarafla, og fara fljótlega að bæta hús sín, skip og tækja- kost. Þá komast kaupmenn og iðnaðar- menn á bragðið og vilja líka virkja sinn peningastraum til eignaaukningar, og ekki síst ef það gæti orðið til að ekki þyrfti að borga neina peninga í bölvaðan ekkisen ríkiskassann. Og tilþess er um að gera að vera nú stórtækur, enda erum við íslend- ingar engir hokurkarlar, og góðærisgróði næsta áratugs er bundinn strax, til að tryggja framtíðina. Svo kom fyrsta áfallið. Launalýðurinn hafði gleymst, en nú kom hann og heimt- aði sinn skerf í góðærinu og fékk hann auðvitað eftir hefðbundið orðaskak. Þar með var darraðardansinn kominn í al- gleyming. Ríkisstjórnir góðæranna reyna stundum að hafa svolítinn hemil á gleð- inni, en hætta því fljótlega vegna þess að mannagreyin missa bara vinnuna ef þeir eru með eitthvert múður. Þeir ganga því í dansinn með okkur hinum og byggja sér kannski svolítinn minnisvarða á okkar kostnað í leiðinni. Það er líka svo skolli gaman að dansa. Svo kom stóra áfallið. Fiskgengdirkom- ust aftur í eðlilegt horf, verð á mörkuðum okkar komst í eðlilegt horf og jafnvel veðr- ið komst í eðlilegt horf. Eftir sitjum við með ægilega timburmenn eftir dansinn og ást- and eins og lýst var hér í upphafi. Við leitum að einhverjum sem ber ábyrgð á ástandinu, en finnum engan. Við ráðumst að stjórnmálamönnum af heift og heimt- um kraftaverk af þeim, sem þeir kunna auðvitað ekki að gera. Heift okkar er enn meiri vegna þess að við vitum að við eig- um sökina öll. Við vitum að við áttum ekki að fara á þetta fyllirí, og við höfum sam- viskubit, við vitum að við áttum að læra af síðasta góðæri og góðærinu þar á undan, en við höfum svikist um að læra. Skyldum við nokkurntíma geta lært? Við skulum að minnsta kost biðja guð okkar umað senda okkur ekki fleiri góðæri fyrr en við höfum lært að bera ábyrgð, þó ekki væri nema hver á sjálfum sér. Sigurjón Valdimarsson ritstjóri Það er svo gaman að dansa VÍKINGUR 5

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.