Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1988, Síða 14
Vonirnar
„Það eru allt of margir
sem ekkert hugsa um
öryggismálin."
14 VÍKINGUR
allra smábáta veröi máluð meö
skærum lit og munu þær koma
til framkvæmda á næsta ári.
Eftir 1. janúar 1989 eiga allir
bátar upp aö 15 metrum aö
vera með 15 cm breiða rönd
málaöa í svonefndum öryggislit
efst á stýrishúsi eöa á hástokk.
Viö teljum aö þetta auðveldi
mönnum að sjá bátana ef verið
er aö leita að þeim og einnig að
þetta minnki hættu á árekstri.
Það hafa oröið árekstrar milli
stórra og lítilla skipa á undan-
förnum árum og ég hef þaö á
tilfinningunni aö slíkir árekstrar
hafi aukist, enda hefur umferö-
in stóraukist vegna fjölgunar
smábáta. Ef þessir litlu bátar
sjást betur meö því aö mála þá
með skærum litum mætti ef til
vill fækka slíkum óhöppum.
Þetta er því viðleitni til að bæta
þar úr.
Af atriðum sem falla ekki
undir reglugerð má nefna nýjar
kröfur hjá okkur um öryggis-
búnaö viö netaspil. Meö til-
komu „dráttarkarlsins" svo
nefnda hefur átt sér stað nokk-
ur breyting á netadrætti um
borö (skipum. Þær kröfur sem
viö gerðum áöur um neyðar-
rofa spilsins eru að okkar mati
ekki lengur nægilegar með til-
komu „dráttarkarlsins". Hætt-
urnar á að menn lendi í spilinu
eru því annars eðlis en áður
var. Því gerum við nú kröfu um
að settur verði upp tvívirkur
loki, sem er á svipuðum stað og
áður en hann stöðvi spilið jafn
skjótt, hvoru megin sem menn
dragast inn að spilinu. Við telj-
um að með tilkomu,, dráttar-
karlsins" sé hættan mest fyrir
þann sem stendur við netarúll-
una. Við höfum kynnt tvívirka
lokann bæði fyrir útgerðar-
mönnum og smiðjum og teljum
að hann muni minnka umtals-
vert hættuna á slysum við neta-
drátt. Ég vona að þessum til-
lögum okkar verði vel tekið og
að tvívirkur loki verði kominn
um borð í fiskiskipin fyrir næstu
vetrarvertíð.“
— Þú sagðir eitt sinn í
blaðaviðtali Magnús, að eitt
væri að setja reglur og reglu-
gerðir, en annað væri að fá
menn til að fara eftir þeim. Þú
sagðir að oft væri erfitt að fá
menn til að fara eftir settum
reglum og nefndir sérstak-
lega björgunaræfingar um
borð í skipum. Hefur einhver
hugarfarsbreyting átt sér
stað hjá skipstjórnarmönn-
um í þessum efnum?
„Ég held að mér sé óhætt að
fullyrða að svo sé, ef við lítum
almennt á málin. Samt sem
áður eru allt of margir sem ekk-
ert hugsa um öryggismálin. Og
ef við tölum sérstaklega um
björgunaræfingarnar, þá sagði
ég í þessu sama viðtali fyrir
tveimur árum að við værum að
byrja með stigmagnandi að-
hald. Nú gerum við kröfur um
fjórar björgunar- og eldvarnar-
æfingar á ári um borð í hverju
skipi sem er 100 brúttórúmlestir
eða meira. Skoðunarmenn
okkar kanna hvort við þetta
hefur verið staðið, á síðustu 3
mánuðum áður en skoðun
skipsins fer fram. Hafi það ekki
verið fær viðkomandi skip ekki
haffærnisskírteinið endurnýjað
fyrr en björgunar- og eldvarnar-
æfing hefur farið fram að skoð-
unarmanni viðstöddum. Það
hefur komið fyrir að breyta hef-