Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1988, Síða 17
Vonirnar
1985 voru aðeins skoðaðir á
milli 300 og 400 bátar en i fyrra
skoðuðum við um 1300 báta.
Við höfum lagt okkur mjög fram
um að ná til eigenda minni
báta, ræða við þá og útskýra
fyrir þeim kröfur okkar. Það gef-
ur augaleið að það er mikilvægt
að sjómenn geri sér grein fyrir
því hvers vegna öryggisregl-
urnar eru settar og hver til-
gangurinn með þeim er. Oft á
tíðum eru menn að fjargviðrast
út af því sem Siglingamála-
stofnunin gerir. Þegar hinsveg-
ar er farið að ræða við menn
kemur oftast í Ijós að andstaða
þeirra er á misskilningi byggð
og augu þeirra opnast. Ég hef
gert nokkuð af því að fara um
landið og ræða við karlana. Ég
fór í fyrra t.d. um Norðurland og
Austurland og á dögunum átti
ég fundi með sjómönnum á N-
Austurlandi, Þórshöfn og Rauf-
arhöfn, þar sem þessi atriði
voru rædd. Ég þykistfinnaauk-
inn áhuga hjá sjómönnum fyrir
öryggismálunum, þótt ég hafi
ef til vill ekki nægan saman-
burð til að byggja á. Ég held að
það sé að eiga sér stað ákveð-
in hugarfarsbreyting hjá mönn-
um varðandi þessi mál. Það er
enginn vafi á því að aukin um-
fjöllun fjölmiðla um öryggismál-
in hefur verið til góðs. Ég tel líka
að öll málefnaleg gagnrýni á
okkur, sem að þessu vinnum,
sé til góðs.“
— Hvað hefur verið aðal
verkefnið hjá Siglingamála-
stofnun undanfarið?
„Skoðun smábátanna hefur
að sjálfsögðu verið mjög stórt
og viðamikið verkefni enda um
stóran flota að ræða og þar hef-
ur vöxturinn verið mestur sl. 2 -
3 ár. Við höfum bæði reynt að
gera hlutina vel og beita hag-
ræðingu þannig að kostnaður-
inn sé í lágmarki. Þetta er samt
sem áður kostnaðarsamt því
hér er ekki um að ræða skoðun
eins og á bílum, þar sem mönn-
um er bara skipað að mæta á
ákveðinn stað á ákveðinni
stundu. Við verðum að semja
okkur að þörfum eigenda bát-
anna og reynum að ná sam-
vinnu við þá um að við getum
komið á staðina og skoðað
helst stærstan hluta bátanna á
viðkomandi stað á sama tíma.
Þetta er þeim mun nauðsyn-
legra, þar sem við höfum farið
út í hreina atvinnumennsku hjá
skoðunarmönnum. Hér áður
fyrr vorum við með lausráðna
skoðunarmenn á hverjum út-
gerðarstað. Það var oft erfitt
þar sem þessir menn voru í
öðrum störfum og höfðu því
ekki sömu tök á að kynna sér
allar okkar reglur. Það orsakaði
svo ósamræmi í eftirlitinu. Nú
eru skoðunarmennirnir nær all-
ir fastráðnir. Þeir eru að vísu
færri en áður var og þess
vegna er samvinna við trillu-
karlana nauðsynleg. Á móti
Hagstofa tsiands Besta lesning til sjós
Kosningaskýrslur 1874-1987
Hagstofan hefur gefið út allar skýrslur sem gerðar hafa verið
um kosningar til alþingis og sveitarstjórna, forsetakjör og þjóð-
aratkvæðagreiðslur á þessu tímabili. Skýrslurnar eru ljósprent-
aðar í tveimur bindum og eru 1.160 blaðsíður.
Kosningaskýrslur 1874-1987 eru til sölu á Hagstofu íslands,
hjá Bókabúð Lárusar Blöndals, Bókaverslun Sigfúsar Ey-
mundssonar, og Bókabúð Máls og menningar og kosta 4.800 kr.
með söluskatti.