Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1988, Blaðsíða 25
Sjóslys rannsökuð í aldarfjórðung
Þaö er orðið að föstum lið
þegar líða tekur á árið að út
kemur ársskýrsla Rannsóknar-
nefndar sjóslysa. Þessi skýrsla
hefur komið út um árabil en á
þessu ári er liðinn aldarfjórð-
ungur síðan nefndin var sett á
laggirnar og skipulegar rann-
sóknir á sjóslysum hér við land
hófust.
Aö þessu sinni er að finna í
skýrslu nefndarinnar álit henn-
ar á 58 slysum og óhöppum hér
við land. Alls kannaði nefndin
74 atvik en af þeim þótti ekki
ástæða til að gefa út álit í sex
málum.
í formála að skýrslunni
kemst formaður nefndarinnar,
Haraldur Blöndal, að þeirri nið-
urstööu að líklegur fjöldi bóta-
skyldra slysa á íslenskum skip-
um árið 1987 haf i verið um 530.
í vor var búið að tilkynna 499
slys til Tryggingastofnunar rík-
isins eins og skylt er að gera.
En miðað við „venjulegan tras-
sagang má búast við að enn
vanti tilkynningar um 30 slys“
eins og segir í formálanum.
Raunar birtir nefndin sérstaka
ályktun um vanrækslu á lög-
bundinni tilkynningarskyldu at-
vinnurekenda og leggur til að
sett verði viðurlög við slíkum
trassaskap.
Auk álitsgerða um sjóslys
birtast í skýrslunni í ár nokkrar
ályktanir auk þeirrar sem þegar
er nefnd. í þeim er fjallað um
SKÝRSLA
Rannsóknarnefndar sjóslysa
fyrir árió 1987
W
m ■
frágang á færum við netalögn,
slys á smábátum, vanrækslu á
færslu skipsbóka, stöðugleika
fiskiskipa, reynslu af sleppi-
búnaði gúmmíbjörgunarbáta
o.fl.
arfjórðungsafmælis nefndar-
innar með því að birt er saman-
tekt Kristjáns Guömundsson-
ar, framkvæmdastjóra
nefndarinnar, á störfum nefnd-
arinnar frá því hún var stofnuð.
Þá er í skýrslunni minnst ald-
Stígvél þessi eru sérstaklega hönnud
fyrir matvælaidnað, svo sem fisk- og
kjötvinnslu. Þau eru alveg varin gegn
dýrafitu, sjávarefnum úr fiski, öllum
jurta- og jarðolíum svo og leysiefnum.
SÓLI:
Alveg stamur í
slori, dýrafitu og
öllum olíum.
Efni í yfirhluta: Acifort.
Efni í fóðri: Nylon.
Stærðir: 3-13 (36-48)
Hæð: 38 cm (43)
FRAMLEIÐANDI:
Heildverslun
H.J.SVEINSSON HF.
SIGTÚN 9,
105 REYKJAVÍK,
SÍMI 68-78-88