Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1988, Qupperneq 33
MýJUMGAR
TÆKNI
og viögeröir geta einungis fariö
fram í slipp eöa dokk.
Þegar um fiskiskip og drátt-
arbát er aö ræöa skapast mikil
hætta fyrir ásþéttiö þegar tóg
eöa net fara í skrúfuna og vefj-
ast um hana.
Fyrirtækið „Kobe Steel ltd“
framleiöir ásþétti sem býöur
upp á talsvert öryggi gagnvart
fyrrnefndum þáttum.
Meðfylgjandi mynd sýnir
langskurð og þverskurö af ás-
þéttinu.
Þéttihringirnir eru venjuleg
uggaþétti (Sealing Ring) sem
gerö eru úr olíuþolnu gúmmíi.
Tveir hringir, #1 og #2, þétta
móti sjónum en hringirnir #3 og
#3S þétta á móti olíunni. Viö
venjulegan rekstur starfar
þéttihringur #3S einvörðungu
sem varahringur (Spare Seal-
ing Ring). Þetta er framkvæmt
á þann hátt aö smurolíuþrýst-
ingurinn er haföur sá sami í
skutpípunni og í rýminu milli
hringjanna #3 og #3S en þá er
opið fyrir lögnina sem leiöir ol-
íuna aö þessu rými. Þessi lögn
sést á teikningunni. Ef þétti-
hringur #3 verður óþéttur kem-
ur fram lækkun á olíuhæð í
hæöarkeri eins og áöur er sagt.
Viö þessar aðstæður skal loka
fyrir smurolíaðstreymi aö rým-
inu milli hringjanna #3 og #3S.
Viö þessa aðgerð myndast
þrýstifall yfir hringinn #3S og
þar meö er hann virkjaður sem
þéttihringur.
Á myndinni má sjá hina
svokölluðu tóghlíf (Rope
Guard) sem fest er viö
skutpípuendann og á aö hindra
aö tóg eöa net vefjist um ás-
þéttiö.
Á myndinni má einnig sjá
netgjörðina (Net Protector) en
meö þessu fyrirkomulagi telur
framleiöandi meiri líkur á því aö
dót sem fer í skrúfuna vefjist
upp milli skrúfublaöa og net-
gjarðar og þar meö verði ás-
þétti og tóghlíf hlíft.
Framleiöandi fullyröir aö
varahlutir og þjónusta fyrir ás-
þéttiö sé til staðar í öllum helstu
hafnarborgum heims.
Aðalskrifstofa fyrirtækisins í
Þýskalandi er Kobe Steel Ltd,
Machinery Division, Immer-
mann Str. 10,4000 Dusseldorf,
F.R. Germany.
Breytt viðhorf gagnvart hönnun og rekstri
kælikerfa
Ýmsar athafnir manna hér á
jöröinni eru þess eölis aö þær
hafa áhrif á efnasamsetningu
gufuhvolfsins meö því aö hliðra
á einhvern hátt því jafnvægi á
efnabreytingum sem stöðugt
eiga sér staö við yfirborð jarö-
arinnar eða í gufuhvolfinu.
Aö undanförnu hafa „freon“-
efnin veriö mjög í sviðsljósinu
en nú þykir sannað að þessi
efni brjóta niðuróson (Oa) sam-
eindir í venjulegar súrefnis-
sameindir (02). Ósonlag gufu-
hvolfsins kemur aö miklu leyti í
veg fyrir að útfjólubláir geislar
frá sólu nái yfirboröi jarðar og
vinnur óson því sem verndar-
hjúpur fyrir lífríki jarðarinnar.
Veiking á ósonmagni gufu-
hvolfsins mundi því hafa í för
með sér aukna útfjólubláa
geislun, viö yfirborö jarðar, og
óttast menn aö afleiöingin yröi
aukning á húökrabbameini hjá
mönnum auk margra alvar-
legra kvilla sem komið gætu
upp í plöntu- og dýraríkinu og
eru höfin þá ekki undanskilin.
Einnig er rætt um aö aukin út-
fjólublá geislun geti stuölaö aö
auknum gróðurhúsaáhrifum.
Nokkuð stór hluti þess „freons",
sem sleppur út í andrúmsloftið,
er talinn koma frá starfandi
kælikerfum en eins og kunnugt
er eru „freon“-kælimiðlar orðnir
mjög algengir bæði í stórum og
smáum kælikerfum.
Ekki er hægt aö setja alla
freon-kælimiðla undir sama
hatt því þeir eru mis hættulegir
gagnvart eyöingu óson-lagsins
og hafa þeir verið flokkaðir í
svokallaöa haröa (fullstandiga)
og veika (ofulstandiga) kæli-
miðla. Þaö sem einkennir hiö
sterka freon er aö þaö inniheld-
VÍKINGUR 33