Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1988, Page 42

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1988, Page 42
Sigurdór Sigurdórsson tók saman Teikningar: Birgir Andrésson Vísnaþáttur Þrátt fyrir þá staðreynd að brageyra íslendinga hefur nokkuð þynnst, er enn til fólk sem yrkir stökur og enn fleiri sem hafa nokkra ánægju af góðum vísum. í trausti þess birtum við nú í Víkingnum vísnaþátt, þar sem leitað verð- ur fanga vítt og breytt. Því er við hæfi að byrja á vísu eftir snillinginn Steingrím Bald- ursson í Nesi, þar sem hann lýsir viðhorfi íslendinga til stök- unnar: Allt sem þjóöin átti og naut, alit sem hana dreymir, allt sem hún þráöi og aldrei hlaut alþýöustakan geymir. Stefán G. Stefánsson Kletta- fjallaskáld lýsir þessu á svipað- an hátt: Undarleg er íslensk þjóð allt sem hefur lifaö hugsun sína og hag í Ijóö hefur hún sett og skrifað. Hlustir þú og sé þér sögö samankveöin bagan þér er upp í lófa lögð landið, þjóöin, sagan. Alkunn er þessi vísa: Ferskeytlan er Frónbúans fyrsta barnaglingur, en reynist svo í höndum hans hvöss sem byssustingur. Hér fyrrum þótti fólki fátt verra en fá á sig hvassa ádeiluvísu og vissulega gátu ferskeytlur verið hvassar sem byssusting- ur. Því til sönnunar má benda á þessa alkunnu vísu Páls Víta- líns um Björn Pétursson sýslu- mann á Burstafelli: Kúgaöu fé af kotungi svo kveini undan þéralmúgi, þú hefnir þess í héraöi sem hallaðist á alþingi. Egill Jónasson frá Húsavík er einhver snjallasti hagyrðingur sem nú er uppi á íslandi. Hann er lítt hrifinn af svo kölluðum atómskáldskap og þegar vinur hans Kristján frá Djúpalæk gaf út bók með nútímaljóðum sem hann nefndi „Þrílæki" eftir að hafa ort hefðbundið fram að því orti Eg- ill til hans vísu eftir að hafa lesið „Þrílækju." Vísan er harður rit- dómur: Gegnum landiö lygn og beinn leið á slóðum kunnum, djúpur lækur, áöur einn, oröinn að þremur grunnum. Einhverju sinni átti Egill við magakvilla að stríða. Læknir hans Daníel Daníelsson hafði sagt Agli að hann mætti alls ekki bragða áfengi meðan hann væri aö fá sig góðan í maganum. Vinur Egils átti sjöt- ugsafmæli meðan á þessu stóð. Sá lá á sjúkrahúsi og þegar Egill heimsótti hann dró afmælisbarnið upp brennivíns- flösku og bað Egil skála við sig í tilefni dagsins. Egill fékk sér tár í tappann, aðeins dropa. Um nóttina varð hann svo afar

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.