Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1988, Side 46
Björgvin guðfaðir Björgvins
Björgvin Jónsson hand-
leikur kampavínið í
þann mund sem hann
gefur skipinu nafn.
Þann 16. júlísl. afhenti skipa-
smíðastöðin í Flekkefjord í Nor-
egi Útgerðarfélagi Dalvíkinga
nýjan togara sem hlaut nafnið
Björgvin. ( blaðinu Fiskaren er
það talið til tíðinda að nafngjafi
skipsins var aldrei þessu vant
af karlkyni, Björgvin Jónsson
stjórnarformaður Útgerðarfé-
lagsins. Vanalega eru það kon-
ur sem fá heiðurinn af því að
brjóta kampavínsflöskuna á
stefni skipa og gefa þeim nafn.
Björgvin var svo sem ekki illa
að þvi kominn að gefa nafna
sínum nafn. Hann hóf sjó-
mannsferil sinn fyrir ríflega sex
áratugum eða árið 1925, þá á
fimmtánda ári. Fyrir réttum
þrjátíu árum stofnaði Björgvin
Útgerðarfélag Dalvíkinga
ásamt Sigfúsi Þorleifssyni, Dal-
víkurbæ og KEA. Hann var
skipstjóri á Björgvini elsta frá
1959 til ársloka 1965 þegar
hann fór í land og gerðist fram-
kvæmdastjóri félagsins. Því
Nýi Björgvin við bryggju í Flekkefjord. Aftan við hann sést í gamla Björgvin
sem sama skipasmíðastöð afhenti árið 1974.
starfi gegndi hann til 1983 en
síðan hefur hann verið stjórnar-
formaður.
Nýja skipið leysir Björgvin
eldri af hólmi og er í alla staði
hið glæsilegasta. Það er 50
metra langt og búið tækjum til
að fullvinna aflann um borð. (
skipinu er plötufrystir sem af-
kastar 40 tonnum á sólarhring.
Aðbúnaður skipshafnar er góð-
ur, rúm eru fyrir 24 skipverja í
eins og tveggja manna klefum
og fylgir salerni og bað hverjum
klefa. Og að sjálfsögðu er skip-
ið búið fullkomnum tækjum í
brú og vélarrúmi. Vélin er 2.500
hestöfl og getur gengið hvort
sem er á dísilolíu eða svartolíu.
Að sögn Björgvins hefur
rekstur skipsins gengið vel síð-
an það kom heim í sumar. „Það
fylgja nýjum skipum alltaf ein-
hverjir barnasjúkdómar en það
er varla orð á þeim gerandi í
þessu tilviki. Skipið hefur verið
á venjulegu bolfiskiríi og geng-
ið ágætlega. Hins vegar hefur
Björgvin ekki nógu mikinn
kvóta, ætli það séu eftir nema
svona 500 tonn og það dugir
ekki nema fram í nóvember.
Þetta er töluverður vandi hér á
Dalvík því mestallur flotinn er
að verða búinn með kvótann."
— Hvað er hægt að gera í
því?
„Það er nú ekki margt. Stærri
togararnir tveir eru á sóknar-
kvóta og mega því ekki kaupa
viðbótarkvóta. Það geta þeir
minni gert en það er orðið svo
dýrt að kaupa kvóta að í því er
engin glóra, í það minnsta ekki
fyrir útgerðina," sagði Björgvin.
Skipstjóri á nýja Björgvin er
Vigfús R. Jóhannesson og 1.
vélstjóri Hafsteinn Kristinsson.
- ÞH