Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1990, Page 33
LANDSSMIÐJAN
Landssmiöjan hf. var
stofnuö 1930 og var
upphaflega í eigu rík-
issjóðs til ársloka
1984, en þá keypti hluti starfs-
manna fyrirtækið og hefur það
síðan verið starfrækt sem
einkafyrirtæki.
Starfsemi Landssmiðjunnar
er tvíþætt, annars vegar rekst-
ur vélsmiðju og hins vegar inn-
flutningur á ýmsum búnaði og
tækjum.
Sérhæfð tækniþekking er
innan fyrirtækisins á fiskimjöls-
verksmiðjum, bæði í smíði,
uppsetningu, viðhaldi og
rekstri. Landssmiðjan framleið-
ir soðkjarnatæki, sem sniðin
eru í stærð og afköstum að
þörfum hvers og eins. Þau eru
af fallstraumsgerð og oftast
hefðbundin glatvarmatæki.
Landssmiðjan hefur nokkuð
gert af því að breyta notuðum
soðkjarnatækjum, til þess að
gera þau afkastameiri og til að
bæta orkunýtingu. Lands-
smiðjan hefur á boðstólum
löndunarbúnað, með síum og
löndunarvogum, mjölblöndun-
arkerfi, bæði fyrir laust og
sekkjað mjöl.
Landssmiðjan býður ýmsan
flutningsbúnað, bæði snigla,
dragara og færibönd, ásamt
tönkum, sílóum o.fl. þ.h.
Landssmiðjan býður einnig
orkunýtingartæki, svo sem
varmaskipta o.fl. þ.h. Lands-
smiðjan getur boðið heildar-
Löndunarbúnaður fyrir
loðnu.
Glatvarmatæki af fall-
straumsgerð.
VÍKINGUR 33