Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1990, Qupperneq 66
LANDVÉLAR H.F.
66 VÍKINGUR
Landvélar hf. er gamalt
og rótgróiö þjónustu-
fyrirtæki í vökva- og
loftbúnaði sem þjónaö
hefur sjávarútveginum síðustu
tvo áratugina. Fyrirtækið hefur
vaxið á þessum tíma og í dag
starfa hjá fyrirtækinu 30 starfs-
menn í þrem deildum, fram-
leiðsludeild, söludeild og
tæknideild. Tækniframfarir
hafa verið miklar á þessum
tíma og þá einna helst nú síð-
ustu ár. Landvélar hafa fylgst
með í þessari þróun og má þar
nefna að Landvélar hf. var fyrst
íslenskra fyrirtækja til þess að
taka í notkun tölvustýrða al-
sjálfvirka spóntökuvél í járniðn-
aði og eru nú starfræktar þrjár
slíkar.
Framleiðsluvörur Landvéla
eru meðal annars: Dælustöðv-
ar stórar og smáar sem nota
má sem drifbúnað við ýmis
tæki svo sem spil, krana, færi-
bandakerfi og fl. Vökvatjakkar
með þvermál upp í 160 mm og
með slaglengd eftir óskum
kaupandans. Slöngu og röra-
fittings úr venjulegu og ryðfríu
stáli. Ryðfríir stjórnlokar í 3/8“
og 1/2“ fyrir stjórnun á færi-
böndum og minni tjökkum.
Sambyggðirstjórnlokar, örygg-
islokar og hraðastillilokar fyrir
neta- og línuspil í minni bátum.
Ennfremur framleiðir fyrirtækið
ýmsa sérhannaða hluti bæði úr
stáli og næloni eftir pöntun.
Undanfarin ár hefur fyrirtæk-
ið verið með markaðsátak er-
lendis sem hefur skilað sér í
miklum áhuga erlendra aðila á
framleiðslu Landvéla hf. á fitt-
ings. Landvélar hf. hefurflutt út
bæði venjulegan og ryðfrían
fittings fyrir milljónir á þessu ári
og þó að upphæðin sé ekki stór
miðað við annan útflutning þá
ber að hafa í huga að mjór er
mikils vísir. Tæknivæðing og
tækniþekking fyrirtækisins er
slík að framleiðslan er sam-
keppnisfær við framleiðslu er-
lendra aðila og það eitt segir
sína sögu.
Söludeild fyrirtækisins sér
um sölu og afgreiðslu á fram-
leiðsluvörum ásamt innfluttum
vörum frá fyrirtækjum sem
Landvélar er umboðsaðili fyrir.
Helstu fyrirtækin eru Rexroth,
Hamworthy, Sauer, Arlon,
UCC, Mecman og fl. Frá þess-
um fyrirtækjum er flutt inn með-
al annars dælur, mótorar,
vökvalokar, loftlokar, lofttjakk-
ar og síur. Ennfremur eru Land-
vélar umboðsaðili fyrir H.M.F.
sjókrana sem komnir eru um
borð í 30 skip. í gegnum tíðina
hefur fyrirtækið verið þekkt fyrir
mikið úrval af slöngum og börk-
um og sérstakt slönguverk-
stæði sér um sérþarfir við-
skiptavina þar sem pressaðir
eru endar á háþrýstislöngur
eftir pöntunum.
Tæknideild Landvéla hf.,
sem hefur vaxið fiskur um
hrygg undanfarin ár, sér um úr-
lausn ýmissa vandamála innan
vökva- og loftkerja og hefur
hannað vökvakerfi í m.a. skip
og verksmiðjur. Til að mynda
sá tæknideildin um vökvabún-
að í 6 skip sem smíðuð voru
erlendis. Æ fleiri viðskiptavinir
hafa nýtt sér þá tækniþekkingu
sem sérmenntaðir starfsmenn
tæknideildar hafa yfir að ráða til
lausnar ýmsum vandamálum.
Landvélar hf. er tæknivætt
fyrirtæki sem fylgt hefur allri
þróun og oft verið í fararbroddi
hvað tæknivæðingu varðar en
byggir á gömlum og traustum
grunni
LANDVÉLAR HF. -
Manufacturers of hydrau-
lic and air equipment
Amongst other things Land-
vélar manufacture hydraulic
pumps both big and small
which are used to drive vari-
ous equipment e.g. winches,
cranes, conveyor belts etc.;
hydraulic jacks with a diame-
ter of up to 160 mm and an
extensibility according to the
customer’s wishes; hoses
and pipe fittings made from
ordinary or stainless steel;
stainless steel control valves
3/8“ and 1/2“ for use on con-
veyor belts and smaller
jacks; control valves with a
relief valve and flow regula-
tor, safty valves and acceler-
ation control valves for net-
and line-winches for the
smaller boats. Furthermore,
the company manufactures
parts out of steel and nylon,
according to individual de-
signs and upon request.
Landvélar’s drawing de-
partment which has expand-
ed in the last few years, has
solved various problems in-
volving hydraulic and air sys-
tems and has designed hy-
draulic systems for ships and
factories amongst others.
For example this drawing de-
partment designed hydraulic
equipment for 6 ships which
were built abroad. More and
more customers have
availed upon the specialised
knowledge of our expert staff
in the drawing department to
solve their various problems.
Landvélar hf. is a techno-
logical company which has
kept abreast with all new de-
velopments and has often
been in the forefront with
technological advances and
is built on established and re-
liable foundations.