Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1990, Page 118

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1990, Page 118
NORM-X 118 VÍKINGUR Norm-x var stofnað fyrir tæpum tíu árum af vélsmiðjunni Norma og fleiri, að- aleigendur Norma og Norm-x nú eru Sævar Svavarsson og fjölskylda. Tilgangur fyrirtækisins er að þróa flutningskerfi fyrir fisk, bæði um borð í skipum og á landi. Fyrsta varan, sem hönn- uð var hjá Norm-x og eitthvað kvað að voru 660 lítra fiskker, sem ennþá eru aðalframleiðsla fyrirtækisins. Einnig framleiðir fyrirtækið 330 og 1000 lítra ker. Um það bil helmingur fram- leiðslunnar í ár hefur verið flutt- ur út. Á lokastigi eru nú ný ker samstaflanleg með hinum eldri, en framleidd með nýrri tækni, sem vonast er til að lækka muni verðið um amk. 30- 40%. Stefnt er að því að sýna fyrstu kerin á Sjávarútvegssýn- ingunni í september. Einnig hefur náðst góður ár- angur í þróun ýmissrra annarra vara og skal þar helst telja set- laugar af ýmsum gerðum, rot- þrær og sorpílát. Það er skoðun fyrirtækisins að þessar vörur megi flytja út í þó nokkru magni ekki síður en fiskkerin, og hafa nú þegar verið sendar prufu- sendingar til USA. Norm-x hefur nú í ár unnið að þvi að víkka út starfsemi fyrir- tækisins og hefur í því skini fest kaup á fullkominni R-RIM pol- yurethan samsteypu (háþrýsti polyurethan steypa), sem verður nýtt í aö framleiða lok á fiskkerin, bobbinga og margt fleira og bindur fyrirtækið mikl- ar vonir við þessa nýju tækni. Lýsing á gámaflutningakerfi Norm-x 660 plastgámar eru með tvöföldu plastbyrði með frauðeinangrun á milli. Þeir þola mjög vel högg og hnjask og eru fyllilega sambærilegir að styrkleika við málmgáma. þeir þola einnig mjög vel að saltað sé í þá og hefur ekki orð- ið vart neinna áhrifa af salti eða öðru. Með því að gámarnir eru einangraðir er ekki sama þörf á sérstakri lestareinangrun, sem verður að teljast hagkvæmt. Eins og flutningskerfi þetta er fyrirhugað er unnið að flokk- un og ísun fisksins strax að að- gerð lokinni. Það verður að telj- ast mikill kostur að flokka fisk- inn strax ofan í gámana og ætti þetta tvímælalaust að stuðla að hærra fiskverði jafnt á innlend- um sem erlendum markaði. Einnig væri e.t.v. hægt að nýta fiskimjölshráefni sem nú er hent. Gámaflutningskerfið verður í fyrsta áfanga eins og áður sagði miðað við togara og að notaðir verði Norm-x 660 gámar, þótt stefnt sé einnig að því að nota það fyrir fiskkassa á flutningspöllum. Sé tekið mið af togara getur aðallest skipsins tekið um 300 slíka gáma. Hver gámur rúmar u.þ.b. 650 kg og er því mögu- leiki á geymslu á um 190 tonn- um af fiski að viðbættum ís. Ef miðað er við nauðsynlegt ís- magn um 15% þarf skipið að geta tekið um 29 tonn af ís í veiðiferð. Þó að ísvél sé höfð um borð er óhjákvæmilegt að taka ís í landi miðað við þetta magn. Geymslumöguleikar um borð eru með ýmsum hætti en vel mætti hugsa sér að nýta gáma sem ísgeymslu og kæmi einangrunin þar að gagni. Ef miðað er við að 42 kg af fiski fari í 70 lítra fiskkassa að viðbættum ís og ef ennþá er tekið mið af togara þarf 4843 fiskkassa til þess að geyma sama magn af fiski, þ.e. 195 tonn. Oft þarf að færa fiskkassa mörgum sinnum í veiðiferð en allar slíkar tilfæringar eru gerð- ar með handafli og oft í erfiðum stellingum. Reiknað er með að unnt verði að minnka þær vinnu- stundir er fara í tilfærslu á fiski um 85-90% og að allt líkamlegt erfiði við tilfærslu verði úr sög- unni með tilkomu gáma og gámaflutningskerfis. Séu þær forsendur réttar að það taki að meðaltali um 1,5 mínútu að flytja gám á lyftu og færsluvagni við löndun er hægt að landa um 26 tonnum á klukkustund. Takmarkandi þáttur í þessu er færslutíminn en með því að hafa tvær lyftur í lest er hægt að tvöfalda þetta magn. NORM-X - PLASTIC MAN- UFACTURERS NORM-X was established 10 years ago by the machine work shop NORMA and oth- ers. The purpose of the com- pany is to develope a con- veyor system for fish both on boats and land. The first products NORM-X designed was 660 liter fishing tubs, which are still their primary product, to- gether with 330 and 1000 li- ter tubs. They have achieved good results in the development of assorted whirlpool bath, sep- tic tanks and rubbish bins. NORM-X 660 plastic con- tainers have a double plastic insulated bottom and can withstand harsh treatment as well as metal containers. If a trawler is taken as an example then 300 of these containers would fit into the ship„s hold. As each contain- er has a capacity of approx. 650 kg therefore it is possible to pack 190 tons of fish ex- cluding ice. If the prerequisites for the container conveyor system, that it takes 1,5 minutes to transport a container by lift and trailer are correct then, it is possible to unload 26 tons of fish per hour.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.