Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2000, Blaðsíða 30

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2000, Blaðsíða 30
Þegar sjómaður tekur pokann sinn eftir að hafa sótt sjóinn í yfir hálfa öld er margs að minnast. Willard Fiske Ólason skipstjóri stiklar á stóru frá löngum ferli í viðtali við Víkinginn Kallinn hýr á svip í brúarglugganum. Willard Fiske Ólason skipstjóri í Grindavík var að koma í land eftir áratuga sjómennsku. Hann hefur lengi verið kenndur við Grindvíking GK þar sem hann hefur verið skipstjóri undanfarin 20 ár og gott betur. Hann er einn af stofnendum og eigendum Fiska- nes hf sem nú er að sameinast Þorbirni hf og Valdimar hf í Vogum, sem verður þar með eitt öflugasta sjávarútvegsfyrirtæki landsins. Willard segir þetta því rétta tímann til að hætta. Hann man tímana tvenna til sjós og rifjar upp eitt og annað frá ferlinum í spjalli við Sjómannablaðið Víking. Þegar ég settist yfir rjúkandi kaffi í eldhúsinu heima hjá Willard og Valgerði Gísladóttur konu hans á vistlegu heimili þeirra í Grinda- vík hef ég á orði að hann heiti ekki algengu nafni. Ólíklegt væri að mannanafnanefnd samþykkti slíkt nafn ef óskað væri samþykki fyrir því nú. „Ég er Grímseyingur að ætt og uppruna," segir Willard og þar með er skýringin komin. Hann er skirður í höfuðið á bandariska fræðimanninum Willard Fiske sem nam norræn fræði á Norðurlönd- um og ferðaðist um ísland 1879. Hann var yfirbókavörður og pró- fessor við Cornellháskóla í New Yorkríki og stofnaði þar fræðistofn- un um ísland, en þar er nú stærsta íslenska bókasafnið í Norður Ameríku. Og hann tók hann sérstöku ástfóstri við Grímseyinga. „Það er merkilegt að hann kom aldrei í eyna, en sigldi þar fram- hjá á sínum tíma. Hann spurði hvort það byggju einhverjir þarna norður í hafi. Þá var honum sagt að eyjaskeggjar væru góðir skák- menn. Nafni minn skrifaði prestinum í eynni og þeir áttu bréfaskipti sín á milli. Presturinn sendi honum nokkrar skákir eyjaskeggja og hann varð svo hrifinn að hann sendi skákborð á hvert heimili í Grímsey og einnig gaf hann Grímseyingum gott bókasafn," segir Willard skipstjóri um þennan nafna sinn. Sjálfur hefur hann ekki gengið í annan háskóla en háskóla lífsins. „Eftir barnaskóla var ég tvo vetur við nám í Laugarnesskólanum í Reykjavík. Þar voru meðal skólafélaga strákar sem seinna urðu meðal þekktustu pólitíkusa landsins. Þar má nefna Jón Baldvin Hannibalsson, Halldór Blöndal og svo Ragnar Stefánsson jarð- skjálftafræðing. Þeir voru þá strax orðnir þrælpólitískir og gaman að hlusta á rökræður þeirra. Þetta var unglingaskóli og eftir hann fór ég á gagnfræðaskólann að Laugum. Þetta er nú mín skólaganga fyrir utan einn vetur í Sjómannaskólanum. Síðan tók við skóli lífsins og þetta voru einu veturnir sem ég var í landi." Einangrað samfélag -Hvernig var að alast upp í Grímsey? „Það var mjög gott en einangrað samfélag. Enginn flugvöllur var á eynni á þessum tíma en hins vegar lítill bryggjustubbur. Flóabát- urinn Ester kom hálfsmánaðarlega á sumrin og á þriggja vikna fresti yfir veturinn. Það var stór dagur þegar báturinn kom. Faðir minn var sjómaður, en raunar voru þetta allt svokallaðir útvegs- bændur því þeir voru líka með kindur og kýr. Ég byrjaði snemma á sjónum. Við fórum að róa á árabát með færi tveir guttar, sjö eða átta ára gamlir. Fórum að vísu ekki langt og fólk virtist ekki vera hrætt um okkur. Svo fór ég að róa á trillu níu eða tíu ára og var rosalega sjóveikur. Það var oft sem ég ældi strax á morgnana áður en farið var út. Ég var sjóveikur meðan á var á trillunum og fyrst eft- ir að ég byrjaði á vertíð. Síðan hef ég vel skilið sjóveika menn. Þeir verða máttlausir og kærulausir um allt. Yngri menn fóru á vertíð á veturna og þá voru kvæntir menn eftir í eynni ásamt konum, börn- um og gamalmennum. Ég hef líklega verið átján ára þegar ég fór fyrst á vertíð. Það var á bát frá Reykjavík sem hét Arnfirðingur og Gunnar Magnússon var skipstjóri. Þetta var mjög „norðlenskur" bát- 30 - Sjómannablaðið Vikingur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.