Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2000, Blaðsíða 38

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2000, Blaðsíða 38
Umræða um umfang og ástæður brottkasts afla reis hátt og tók á sig ýmsar óvæntar myndir áður en hún lognaðist útaf i bili Skipstjórar nær 30 frysti- v togara sendu sjávarútvegs- I S ráðherra áskorun um að , > láta fara fram opinbera 1 rannsókn á brottkasti afla. 38 - Sjómannablaðið Víkingur Mikil umræða um brottkast afla gaus upp seinnipartinn í júní og magnaðist á næstu vikum. Tók hún sífellt á sig nýjar myndir. Sumir töldu brottkastið gífurlegt en aðrir að það væri óverulegt. Gagnrýnendur núver- andi fiskveiðistjórnunar sögðu brott- kastið afleiðingu kröfunnar um verð- mestan fisk að landi. Talsmenn kerf- isins vildu lítið gera úr málinu í upp- hafi og fráleitt væri að brottkast hefði eitthvað með fiskveiðistjórnunina að gera. Þetta væri rógur í garð sjó- manna því útgerðir vildu ekkert brottkast. Sjómenn fóru að koma fram opinberlega og játa á sig þátt- töku í brottkasti. Þeir lýstu ástæðun- um og vönduðu kerfinu ekki kveðj- urnar. Þá breyttist umræðan og kerf- ismenn hættu að andmæla því að brottkast væri umtalsvert, en það hefði alltaf viðgengist. Nú var eins og stífla brysti og menn ruddust fram hver um annan þveran og játuðu á sig gömul brot í þessa veru, jafnvel þingmenn og ráðherrar. Það væri gamall siður að veiða fisk til þess að henda honum aftur í sjóinn og hefði ekkert með kvótakerfi að gera. Landsmenn urðu sífeilt langleitari eft- ir því sem leið á umræðuna en spaugarar lögðu til að settar yrðu ör- yggismyndavélar um borð í öll fiski- skip. Loks þótti fiskistofustjóra nóg komið. Breiddi úr sér á skjánum og hótaði að senda pólití og saksóknara á hvern þann er dirfðist að játa á sig brottkast afla. Sagði slíkar játningar engu skárri en að játa á sig fíkni- efnasmygl og varð þá mörgum orð- fall. Það fjaraði undan umræðunni í bili. Sprengjunni kastað Það var þann 22. júní sem Guðjón A. Kristjánsson alþingismaður kom fram í fjölmiðlum og gerði að umtals- efni athugun Fiskistofu á aflasam- setningu tiltekinna báta. Við þá at- hugun kom fram vísbending um verulegan mun á aflasamsetningu þegar eftirlitsmaður var um borð og þegar enginn slíkur var með í för. Mismunurinn virtist liggja í brottkasti. Guðjón sagði arðsemiskröfuna orðna svo mikla að enginn gæti leyft sér að koma með fisk að landi sem væri undir 70 sentimetra langur. Hann sagði brottkastið afleiðingu af frjálsu framsali. Áður en lengra er haldið er rétt að fara aftur til 17. júní. Þann dag birtist í Morgunblaðinu álit nokkurra stjórn- enda sjávarútvegsfyrirtækja á á- kvörðun sjávarútvegsráðherra um
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.