Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2000, Page 52
Þjónustusíður
Gunnar Baldvinsson, forstöðumaður ALVÍB.
Má LjuDsj þér
með lítilli fyrirhöfn?
Meö því aö gera samning um lífeyrissparnaö eignast þú meiri eignir
en ef þú velur annaö sparnaöarform. Samanburóur leiöir í Ijós aö
á löngum tíma getur munaö mörgum milljónum!
Launþegar og sjálfstæðir atvinnurekendur geta nú greitt 4% af
heildarlaunum sem viðbótariðgjöld til lífeyrissparnaðar. Þeir sem
nýta sér þessa heimild fá til viðbótar 0,4% mótframlag frá launa-
greiðanda sem er endurgreitt tryggingagjald. í mörgum kjarasamn-
ingum hefur einnig verið samið um að launagreiðendur skuli gegn
framlagi launþega greiða mótframlag sem nemur allt að 2% af
launum. Þannig getur heildarsparnaðurinn verið á bilinu 4,4% til
6,4% af launum (ekki hefur verið samið um mótframlag frá launa-
greiðendum í kjarasamningum sjómanna).
Vegna hagstæðrar skattlagningar og mótframlags launagreið-
anda er lífeyrissparnaður afar góður sparnaðarkostur. í samanburði
við annan sparnað getur munað mörgum milljónum á löngum tíma.
Meðallaun sjómanns í fullu starfi árið 1999 voru 375 þúsund
krónur á mánuði samkvæmt upplýsingum frá Þjóðhagsstofnun. Ef
meðalsjómaðurinn greiðir 4,4% af launum til lífeyrissparnaðar í 40
ár eignast hann 29 milljónir (eftir skatta) sem er 11 milljónum meira
en ef hann hefði valið annað sparnaðarform. Ekki slæmur kostur
það!
Þægilegt sparnaðarform
Lífeyrissparnaður er mjög þægilegt sparnaðarform sem byggist á
því að einstaklingar gera samning við séreignarsjóð eða fjármála-
fyrirtæki um að launagreið-
andi skuli mánaðarlega
draga tiltekna fjárhæð frá
launum og greiða sem við-
bótariðgjöld í séreignarsjóð
eða inn á lífeyrissparnaðar-
reikning hjá fjármálafyrir-
tækjum. Inneignin er laus
til úttektar frá 60 ára aldri
og er greidd út á sjö árum
eða á þeim tíma sem eig-
anda vantar upp á 67 ára
aldur. Lífeyrissparnaður
erfist við fráfall.
Með því að gera samn-
ing um lífeyrissparnað
samþykkja launþegar að
hluta af mánaðarlegum
iaunum sé varið til lífeyris-
sparnaðar. í raun lækka
ráðstöfunartekjur minna en
sem nemur sparnaðinum
Útbúum
lyfjakistur
fyrir skip og báta
Eigum ávallt tilbúna sjúkrakassa
fyrir vinnustaði, bifreiðarog heimili.
Lyf & heilsa
• Kringlan 1. hæð, sími: 568 9970
• Hafnarstræti Akureyri, sfmi: 460 3452
Lyf&heiisa
mmmm mmmm
BETRI LÍBAN
þar sem lífeyrissparnaðurinn er dreginn af launum fyrir skatta. Sjó-
maður sem hefur 375 þúsund krónur í mánaðarlaun og gerir samn-
ing um að verja 4,0% af launum til lífeyrissparnaðar greiðir mánað-
arlega 15.000 kr. sem viðbótariðgjöld í lífeyrissparnað en ráðstöfun-
artekjur lækka hins vegar um 9.200 krónur.
Hagstæð skattlagning
Um lífeyrissparnað gilda mjög hagstæðar skattareglur. Inneign í
séreignarsjóði eða lífeyrissparnaðarreikningi er eignarskattfrjáls og
ekki er greiddur fjármagnstekjuskattur af vaxtatekjum. Iðgjöld til líf-
eyrissparnaðar eru greidd óskattlögð í séreignarsjóð en útborganir
eru hinsvegar skattlagðar. í raun er tekjuskattinum frestað þar til
inneignin er tekin út en í sumum tilvikum lækkar tekjuskattur. Það
Rærð þú
öruggu
skipi til
fiskjar ?
RT hf RAFAGNATÆKNI
P.O.BOX 8555-128 REYKJAVÍK
SÍMI 568 7555 FAX 568 7556
Stöðugleikavakt
Varar fljótt við of litlum stöðugleika
*vegna rangrar hleðslu *vegna siglingarstefnu
*vegna yfirísingar *vegna lítillar kjölfestu
*vegna leka
52 - Sjómannablaðið Víkingur