Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2000, Page 54

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2000, Page 54
greiðir hátekjuskatt. Et hann er einn greiðir hann hátekjuskatt en ef hann er giftur (eða í sambúð) og tekjur maka eru lægri en 171 þúsund krónur á mánuði greiðir hann ekki hátekju- skattinn. í þessari grein er reiknað dæmi fyrir einstakling með 375 þúsund krónur á mánuði sem greiðir hátekjuskatt. Ávinningurinn nemur milljónum Besta leiðin til að sjá kosti lífeyrissparnaðar er að bera hann saman við annan sparnað. Taflan fyrir neðan sýnir slík- an samanburð en þar er reiknað með að einstaklingur greiði 4,0% af launum til lífeyrissparnaðar af 375 þúsund króna mánaðarlaunum og fái 0,4% mótframlag frá launagreiðanda. Dæmið sýnir ávinninginn af lífeyrissparnaði umfram annan sparnað en á löngum tíma munar verulegum fjárhæðum á höfuðstól eftir hvor leiðin er valin. Reiknað er með að einstaklingur hafi 375 þúsund krónur í laun á mánuði og greiði af þeim 4,4% til lífeyrissparnaðar. Einstaklingurinn greiðir eignarskatt og hátekjuskatt. Ávöxtun á ári er 7,5%.. Vegna mótframlags launagreiðanda og hagstæðrar skatt- lagningar vex lífeyrissparnaður meira en annar sparnaður og er mismunurinn 11,7 milljónir eftir 40 ára sparnaðartíma. Lífeyrissparnaður hjá VÍB VÍB býður sjómönnum að greiða viðbótariðgjöldin í ALVÍB (fjölmennasti séreignarsjóðurinn) og/eða inn á Eftirlauna- launareikning en þar geta einstaklingar skilgreint fjárfesting- arstefnuna sjálfir og búið til sinn eigin séreignarsjóð. í ALVÍB geta sjóðfélagar valið á milli þriggja verðbréfa- safna, Ævisafna I, II og III. Eignasamsetning safnanna tekur mið af aldri sjóðfélaga, þ.e. eignum er raðað saman í hlutföll- um sem talin eru henta fyrir mismunandi aldursskeið. Sjóðfé- ► Allt á einu bretti! til línuveiða Eitt símtal • Ein pöntun • Ein sending IMETASALAIV Skútuvagi 1B-L • Sími 5E8 1813 • Fax 5E8 1BE4 Apstekið liþurð og lægra verð Það er ómetanlegt að geta brugðist rétt við ef slys eða óhapp ber að höndum. Þá er nauðsynlegt að hafa vel búinn sjúkrakassa við hendina. Apótekið býður vandaða sjúkrakassa sem auðvelda þér að bregðast rétt við meiðslum og óhöppum þegar á reynir. Líttu við í Apótekinu og fáðu sjúkrakassa sem eykur á öryggi þitt og þinna. Smáratorgi Fjarðargötu Kringlunni Smiðjuvegi Allur er varinn góður...

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.