Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2000, Side 5
Mælirinn
er fullur
Langlundargeð sjómanna er mikið en því eru takmörk sett.
Samninganefnd Farmanna- og fiskimannasambands íslands
hefur mánuðum saman reynt að fá fulltrúa LÍÚ til að ganga
til kjarasamninga án árangurs. Því hefur verið ákveðið að boða til
verkfalls frá miðjum mars hafi samningar ekki tekist. Sjómanna-
samband íslands og Vélstjórafélagið boða einnig verkfall á sama
tíma. Með þessum rúma tima til áframhaldandi viðræðna sýna sjó-
menn enn samningsvilja framyfir verkfallsvilja. Enginn getur haldið
því fram með réttu að sjómenn hafi ekki lagt sig fram um að ná
samningum við LÍÚ. Samningar hafa verið lausir frá því í febrúar
þegar lög sem sett voru á sjómenn vorið 1998 gengu úr gildi. i maí
visuðu Samtök atvinnulífsins deilunni til ríkissáttasemjara. Sátta-
semjari fékk forstjóra Þjóðhagsstofnunar til að reyna að finna lausn
á deilunni. Hann skilaði álitsgerð í málinu þar sem tekið var tillit til
sjónarmiða beggja deiluaðila. Fulltrúar útvegsmanna brugðust við
með köpuryrðum í garð hins opinbera embættismanns. í október
lagði forstjórinn svo fram tillögu um viðræðugrunn þar sem meðal
annars var lagt til, að gerður yrði skammtímasamingur meðan til-
tekin atriði yrðu endurskoðuð. Útvegsmenn höfnuðu þessu eins og
öðru. Þar á bæ er enginn sýnilegur vilji til samninga. Þvert á móti
segir framkvæmdastjóri LÍÚ í fjölmiðlum, að sjómenn hafi svo há
laun að þau verði í engu bætt. Einstakir útvegsmenn ganga lengra
og segja laun sjómanna standa í vegi fyrir endurnýjun fiskiskipaflot-
ans!
Sem betur fer hafa margir sjómenn góð laun og sjómennska á
að vera hálaunastarf. í siðasta tölublaði Víkingsins biftist viðtal við
skipstjóra og útgerðarmann þar sem hann segir réttilega að enginn
fari út á sjó nema hann hafi helmingi meira uppúr því en að vera í
landi. LÍÚ forðast að nefna að laun sjómanna á fiskiskipum hafa
lækkað um allt að 12,5% vegna tengingar hlutaskipta við olíuverð.
En í kjaradeilunni er mest tekist á um verðmyndun á afla. Sam-
kvæmt kjarasamningum ber sjómönnum hæsta mögulega verð fyrir
aflann. Þetta ákvæði er þverbrotið þar sem fiskverði er haldið niðri í
beinum viðskiptum og sjómenn bera skarðan hlut frá borði. Forystu
LÍÚ má vera það Ijóst, að sjómenn láta ekki lengur traðka á sér
með þessum hætti. Svívirðingum og óhróðri um sjómenn og forystu
þeirra af hálfu sumra útvegsmanna verður mætt af fullri hörku. Hér
er um að tefla sjálfsvirðingu sjómanna og framtíðarhagsmuni
þeirra. Vera má, að ófyrirleitnum atvinnurekendum haldist uppi að
kúga sumar stéttir manna. Sjómenn munu hins vegar seint kyssa
vöndinn.
Sæmundur Guðvinsson
Útgefandi: Farmanna- og fiskimannasamband íslands,
Borgartúni 18, 105 Reykjavík.
Afgreiðsla og áskrift: sími 562 9933
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Sæmundur Guðvinsson.
sími 868 2159, netfang sgg@mmedia,is.
Auglýsingastjóri: Sigrún Gissurardóttir, sími 587 4647
Ritnefnd: Benedikt Valsson, Eiríkur Jónsson, Hilmar Snorrason
Forseti FFSÍ: Grétar Mar Jónsson
Framkvæmdastjóri: Benedikt Valsson.
Umbrot, filmuvinnsla, prentun og bókband: Grafik
Aðildarfélög FFSÍ: Félag islenskra skipstjórnarmanna, Skipstjórafélag Norðlend-
inga, Félag íslenskra loftskeytamanna, Félag bryta, Félag matreiðslumanna,
Skipstjóra- og stýrimannafélögin: Aldan, Reykjavík; Bylgjan, ísafirði; Sindri,
Neskaupstað; Verðandi, Vestamannaeyjum; Vísir, Suðumesjum; Ægir, Reykjavík.
Blaðið kemur út fjórum sinnum á ári.
6 Jólahugvekja biskups íslands
8-12 Viðtal við Matthías Johannessen skáld og ritstjóra þar sem hann kemur víða við og segir meðal annars frá kynnum sínum af sjónum og sjómönnum
14-16 Saga Slysavarnarfélags íslands. Viðtal við Einar S. Arnalds og kafli úr bók hans um sögu félagsins
20-22 Gelding þorskstofnsins. Grein eftir Svein- björn Jónsson sjómann
28 Nepja við Nýfundnaland. Frásögn Hafliða Magnússonar fyrrverandi togarasjómanns
30-33 Samykktir frá formannráðstefnu FFSÍ sem haldin var í Keflavík í nóvember
38 Makalaus áróður á hendur sjómönnum. Grein eftir Eirík Jónsson stýrimann
40-48 ísmaðurinn í Kuummiit. Kafli úr nýrri bók Reynis Traustasonar þar sem segir frá Sig- urði Péturssyni togaraskipstjóra sem er nú búsettur á Grænlandi
57-59 Utan úr heimi
62-63 Af skútulífi ofvitans. Frásögn Þórbergs Þórð- arsonar
Sjómannablaðið Víkingur - 5