Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2000, Blaðsíða 31
gjaldmiðla. í þessu sambandi hafa samtökin einna helst vísað til
þeirrar lausnar að allur fiskur verði seldur á uppboðsmarkaði eða
markaðstengdu verði.
Formannaráðstefna Farmanna- og fiskimannasambands íslands
hafnar öllum tillögum sem fela í sér að sjómenn beri hluta af hugs-
anlegu veiðigjaldi eða auðlindaskatti í sjávarútvegi. Jafnframt telja
samtökin það afar undarleg vinnubrögð hjá svonefndri auðlinda-
nefnd, sem á rúmlega tveggja ára starfstíma sínum hirti aldrei um
að leita sjónarmiða og umsagnar hjá samtökum sjómanna á íslandi
um það viðfangsefni sem hún var að fást við.
Formannaráðstefna Farmanna- og fiskimannasambands íslands,
beinir því til samninganefndar fiskimanna að halda fast við þá kröfu
í yfirstandandi kjaraviðræðum að kauptrygging skipstjórnarmanna
verði hækkuð verulega.
Formannaráðstefna Farmanna- og fiskimannasambands íslands,
beinir því til samninganefndar fiskimanna að halda fast við þá kröfu
að bætur vegna slysatryggingar taki mið af reglum skaðabótalaga
nr. 50/1993, með síðari breytingum.
Formannaráðstefna Farmanna- og fiskimannasambands íslands
varar við því að hróflað verði við gildandi sjómannaafslætti, sem er
hluti af kjörum sjómanna og verður ekki lagður niður nema að fullar
kjarabætur komi þar á móti.
Um atvinnuréttindi skipstjórnarmanna
Formannaráðstefna Farmanna- og fiskimannasambands íslands,
haldin í Keflavik dagana 23. og 24. nóvember 2000, mótmælir fram-
komnu frumvarpi til laga um áhafnir íslenskra skipa, en þar er með-
al annars verið að leggja til róttækar breytingar á reglum um at-
vinnuréttindi skipstjórnarmanna á fiskiskipum. Samkvæmt þessum
breytingum verða minni kröfur gerðar um atvinnuréttindi skipstjórn-
armanna sem óhjákvæmilega leiðir til fækkunar á réttindamönnum
á fiskiskipum sem sfðan leiðir til þess að verulega er slegið af ör-
yggisstuðlinum um borð. Þetta skýtur skökku við með hliðsjón af
þeirri metnaðarfullu vinnu sem samgönguráðherra hefur beitt sér
fyrir varðandi gerð á öryggisáætlun sjófarenda. Formannaráðstefn-
an beinir því til samgönguráðherra að öll ákvæði um atvinnuréttindi
skipstjórnarmanna á fiskiskipum í framangreindu lagafrumvarpi
verði felld niður.
Um aukinn ufsakvóta
Formannaráðstefna Farmanna- og fiskimannasambands íslands,
haldin í Keflavík dagana 23. og 24. nóvember 2000, ítrekar áskorun
til sjávarútvegsráðherra að hann taki á-
kvörðun um að auka heildarkvóta á ufsa
strax. Samþykkt stjórnar FFSÍ þann 9.
nóvember 2000 um sama efni er
svohljóðandi:
„Fundur sambandsstjórnar Farmanna-
og fiskimannasambands íslands, haldinn
9. nóvember 2000, skorar á sjávarútvegs-
ráðherra að auka leyfilegan heildarafla í
ufsa um 20 þúsund tonn á yfirstandandi
fiskveiðiári.
Skipstjórnarmenn á fiskiskipum eru
sammála um að ufsagengd hér við land
sé nú meiri en undanfarin ár. Verði heild-
arafli ufsa ekki aukinn þegar í stað er allt
eins víst að við missum af þessu tækifæri
til að auka veiðina. Auk þess er það
miklum vandkvæðum bundið að forðast
ufsa sem meðafla þegar sótt er í aðrar
botnfisktegundir. Þetta býður þeirri hættu
heim að fiski verði kastað í ríkara mæli
fyrir borð.
Fundur sambandsstjórnar Farmanna- Jóhannes Jóhannesson og Örn Einarsson, Vísi
Grétar Mar Jónsson forseti FFSÍ
og fiskimannasambands íslands beinir því einnig til sjávarútvegs-
ráðherra að rannsóknir á göngum, vexti og viðkomu á ufsa verði
auknar.”
Um uppboðsmarkaði
Formannaráðstefna Farmanna- og fiskimannasambands íslands,
haldin í Keflavík dagana 23. og 24. nóvember 2000, samþykkir að
ein af aðalkröfum í samningum vegna endurnýjunar kjarasamninga
fiskimanna sé að allur fiskur verði seldur á uppboðsmarkaði. ^
Sjómannablaðið Víkingur - 31