Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2000, Blaðsíða 57
Mikil og hörð viðbrögð stjórnvalda í Grikklandi urðu eftir að Ex-
press Samina fórst í liaust.
Teknir í karphúsið
Siglingamálaráðherra Grikklands rak þarlendan siglingamála-
stjóra og átta skipaskoðunarmenn eftir að farþegaferjan Express
Samina fórst og 80 manns með henni. Var þeim gefið að sök að
hafa þegið mútur og hafa stuðlað að slæmum móral meðal hafnar-
ríkisskoðunarmanna ásamt því að hafa ekki staðið sig i því eftirliti
sem ætlast var af þeim varðandi öryggi ferjunnar. Stjórnvöld þar í
landi hafa boðað umbyltingar í öryggismálum ferja og hafa öryggis-
málin verið eitt aðal umræðuefnið í þinginu hjá þeim.
Kaldur kall
Þrjátíu og þriggja metra langur tvíbolungur, Club Med, gerði sér
lítið fyrir og sigldi á 20 mílna hraða á móti skiþaumferð á aðskildri
siglingaleið undan Dover fyrir skömmu. Alls kærðu 17 skip siglingu
Club Med en skipstjórinn þar um borð er þekktur maður í skemmti-
siglingabransanum. Þrátt fyrir það verður hann að þunga út 12 þús-
und sterlingsþundum í sektargreiðslu fyrir upþátæki sitt.
Eitt af gömlu Sealand skipunum i nýjum litum Maersk Sealand
Gámarisinn mikli
Samruni Mærsk (gámaskiþadeildin) og Sealand skipafélaganna
er nú yfirstaðinn. Eins og áður hefur verið sagt á þessum síðum
keypti danski risinn sig inn í bandaríska skipafélagið og eru nú þau
bandarísku komin f bláa lit Mærsk skiþanna. Þá breyttust einnig á-
letranir á síðum skipanna í Maersk Sealand. Nú er þetta lang
stærsta gámaskipaútgerð heims og þeir sem næstir koma þeim,
Evergreen, eru helmingi minni. Sameinaði gámaskiþaflotin telur
110 eigin skip (400.000 teu’s), 40 leiguskip (200.000 teu’s) og 23
nýbyggingar (100.000 teu’s). Það þarf Ifka reiðinar ósköp af gám-
um í allan þennan flota en gámarnir eru taldir vera 700.000
þurrgámar, 75.000 frystigámar og 80.000 fleti. Hjá fyrirtækinu
starfar 3000 manns.
„Það er sokkið”
Á síðasta ári fengum Reykvíkingar heimsókn skips Alþjóðaflutn-
ingaverkasambandsins ITF Global Mariner en skipið sigldi umhverf-
is hnöttin með sýningu á bágum aðbúnaði og kjörum sjómanna.
Þegar heimssiglingunni lauk var skipið sett á sölu en erfiðlega gekk
að selja skipið og var því breytt í þjálfunarskip í júní s.l. Ekki varð
skipið farsælt í sínu nýja hlutverki því að þann 2. ágúst lenti skipið í
árekstri við annað skip, Atlantic Crusader, með þeim afleiðingum
að það sökk. Atlantic Crusader lá við akkeri er áreksturinn varð en
minni skemmdir urðu á því.
Frystiskipin sem verið er að sökkva “rólega”
Brotajárnsmenn leggja upp laupana
Þrjátíu og átta af sjötíu niðurrifsstöðvum á Chittagong svæðinu í
Bangladesh hafa hætt starfsemi sinni á síðustu þremur árum.
Meðal ástæðna fyrir þessum samdrætti er minnkandi eftirspurn eftir
niðurrifi ásamt lágu verði. Ástand við niðurrifsstöðvar í Bangladesh
hefur verið eitt af baráttumálum Greenpeace en þeir hafa bent á
háa slysatíðni við þessa atvinnugrein þar í landi. í júní s.l. létust 25
og yfir 100 slösuðust við niðurrif skiþa þar í landi. í endaðan mai
kom upþ eldur við niðurrif á risatankskiþinu Dena og létust 17 en 60
slösuðust. Margir verkamenn verða árlega fyrir skaða af völdum
gas- og eiturefna sem leysast úr læðingi þegar verið er að rífa skipin.
Vélagallar
Fundist hafa gallar í aðalvélum yfir 24 skipa sem flest voru smíð-
uð hjá Daewoo. Um er að ræða sprungur sem myndast í botn-
ramma en vélarnar sem um ræðir eru af Sulzer gerð RTA84T og
84T-B. ►
Sjómannablaðiö Víkingur - 57