Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2000, Blaðsíða 54
Brimrún kynnir byltingarkennda nýjung frá FURUNO
Hörður Sævaldsson sölumaður hjá Brimrún og Sveinn Kr. Sveinsson sölustjóri með
nýja dýptarmælinn.
Margir munu án efa hafa hug á nýja dýpt-
armælinum frá FURUNO sem Brimrún hefur
fengið til sölu. Um er að ræða FCV-
1200/1200M dýptarmæli með frjálsri tíðni
(FFS) Hér er um að ræða nýjung frá FURU-
NO sem gefur notandanum kost á að velja
botnstykki á tíðnisviðinu 15 til 200 kHz, með
sendiorku allt að 10 kW. Dýptarmælirinn
kemur án skjás með lausu lyklaborði. Hægt
er að staðsetja senda inn í púlti og hafa
lyklaborðið ofan á borði eða fella inn í borð.
Kaupandinn velur síðan flatskjá eða lampa-
skjá við hæfi. FCV-1200L er tveggja tíðna dýptarmælir með
tveimur innibyggðum 1-3 kW sendum á frjálsri tíðni 15-200 kHz.
FCV-1200M er dýptarmælir án senda en hægt að tengja tvo uta-
sri tíðni
náliggjandi senda á frjálsri tíðni 15-200
kHz. Tvær gerðir af utanáliggjandi send-
um eru í boði, 1-5 Kw og 1-1 OkW.
Fjölmargir möguleikar eru fyrir hendi
við uppsetningu skjámyndar. Ein, tvær
eða þrjár botnmyndir lárétt eða lóðrétt yfir
skjáinn. Hægt er að vista þrjár mest not-
uðu uppsetningar á skjámyndum. Þá eru
miklir möguleikar í boði við úrvinnslu
botnmyndar: Hefðbundin mynd (hátíðni,
lágtíðni eða báðar). Blöndun á hátíðni og
lágtíðni (Mix). Botnlæsing, botnhörku-
greining, stækkun (zoom), fisksjá (A-
scope), hvítlína.
- Með nýjum Analog/digital breyti er
minni hætta á truflunum. Vinnur á veikara
merki og þar af leiðandi minni bjögun við
mögnun.
- Bandbreidd mælisins er breytileg eftir
skölum en hefur hingað til verið föst á öll-
um skölum. Greining verður betri á öllu
dýpi.
- Mælirinn er með hvítlfnu sem að-
greinir betur fisk frá botni.
- Breyta má með einfaldri aðgerð sterk-
ustu litunum einn af öðrum í hvítan lit og
er það gott til að skoða þéttleika torfu upp
í sjó.
- Fleiri möguleikar eru á litum í bak-
grunni og samsetningu en áður.
- Litakúrfu er hægt að stilla eftir því á
hvaða veiðum menn eru á og hvaða fisk-
tegundir verið er að leita að.
- Hægt er að breyta fortíðni mælisins
+/-10% upp eða niður ef hann truflar ann-
að fiskileitartæki um borð.
- Nýi dýptarmælirinn er með fleiri tengimöguleika við önnur
tæki en aðrir mælar.
54 - Sjómannablaðið Víkingur