Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2000, Blaðsíða 36
flutningastarfsemin og hins vegar fjárfestingarstarfsemin. Fjárfest-
ingarhlutinn hefur verið að skila talsvert meiru en flutningahlutinn.”
Strandsiglingar áfram
- Er jafnvel fyrirhugað að Eimskip hætti reglubundnum strand-
siglingum?
„Það eru ekki uppi áform um slíkt. Hins vegar er því ekki að
leyna að það verður að skapa skilyrði fyrir strandflutningunum. Það
er ekki hægt að horfa framhjá því að þeir flutningar eiga í nokkuð
mikilli samkeppni við landflutningana og vissulega er álitamál hvort
rétt sé gefið í þeim efnum. Þá er ég meðal annars að horfa til skatt-
lagningar þessara flutningaþátta.”
- En eru einhverjar verulegar breytingar framundan í rekstri Eim-
skips almennt?
„Vitaskuld er alltaf verið að horfa til vaxtarmöguleika og aukinnar
þjónustu á ýmsum sviðum. Það eru verkefni sem eru til skoðunar
með reglubundnum hætti. Nú er verið að gera fjárhagsáætlun fyrir
næsta ár og þá eru ýmsir þættir til skoðunar. Ég á von á að niður-
stöður liggi fyrir öðru hvoru megin við áramót. En það eru engar
stórbyltingar í vændum.”
- Hver finnst þér vera helsti munurinn á að sitja hér í stóli for-
stjóra Eimskips frá því að vera bæjarstjóri?
„Þetta er miklu harðara samkeppnisumhverfi heldur en menn
eiga að venjast í sveitarstjórnarmálum þótt vissulega sé töluverð
samkeppni milli einstakra sveitarfélaga. En þetta starf eins og bæj-
arstjórastarfið snýst um almenna stjórnsýslu, fjármálastjórn, áætl-
anagerð til lengri tíma, markmiðssetningu og mannleg samskipti.”
- Forveri þinn lét svo ummælt þegar hann lót af störfum sem for-
stjóri að hann hefði haft lítinn tíma til að sinna fjölskyldunni. Ertu
hræddur um að starfið gleypi þig, ef svo má segja?
„Ég hef verið í þannig störfum að þau hafa kallað á mjög langan
vinnudag. En að sjálfsögðu reynir maður að spila þannig úr því að
maður geti átt farsælt fjölskyldulíf og það hefur mér og minni fjöl-
skyldu tekist það sem af er. Ég vonast til að svo verði áfram. Þetta
verður allt að falla saman til þess að hlutirnir gangi upp.”
-Kona þín er leikskólakennari. Heldur hún þvi starfi áfram?
„Hún er í hálfu starfi og ég á von á því að hún haldi því áfram.”
- Það hefði einhvern tíman ekki þótt viðeigandi að forstjórafrú
Eimskips kenndi í leikskóla?
„Það má vel vera,” segir Ingimundur og getur ekki varist hlátri.
“En ég sé ekki af hverju hún ætti ekki að halda áfram sínu starfi,
sem hún hefur mjög gaman af, þó að ég sé í þessari stöðu,” sagði
Ingimundur Sigurpálsson.-SG
Rafsuðuhjálmar
öndunarbúnaður
Heyrnarhlífar
Heyrnartól
Eyrnatappar
Samskiptakerfi
Andlitshlífar
Öryggisgleraugu
Öryggishjálmar
Ljós
Rafhlöður
Handluktir
Dragðu ekki
lengur að vería
þíg gegn stysí!
Hlífðarfatnaöur
Vinnufatnaður
Frá árinu 1954 hefur Dynjandi sérhæft sig í sölu
og kynningu á viðurkenndum öryggisbúnaði fyrir
starfsfólk i islensku atvinnulífi.
Áratuga reynsia tryggir aó einungis eru á boð-
stóLnum vióurkennd vörumerki sem hafa staðist
ströngustu gæóapróf og eru ísLenskum iðnaðar-
mönnum að góðu kunn.
D Y NXJ AXN D I
allt fyrir öryggið
SKEIFAN 3 REYKJAVIK SIMI 588 5080 FAX 568 0470
36 - Sjómannablaðið Víkingur