Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2000, Blaðsíða 40

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2000, Blaðsíða 40
mg Um borð í Framnesi IS á áttunda áratugnum. Sigurður Pétursson skipstjóri er vægast sagt vígaiegur með tvær byssur. Hann þótti með svalari togaraskipstjórum og togaði gjarnan inni í ísnum. ISeiði Grænlands, nýrri bók Reynis Traustasonar, fyrrver- andi skipstjóra og núverandi rit- stjórnarfulltrúa á DV, er fjallað um sex íslendinga á Grænlandi. Stefán Hrafn Magnússon er hreindýrabóndi í Isortoq á Suð- ur-Grænlandi, Helgi Jónasson er ferðafrömuður í Narsaq á Suður- Grænlandi. Kristjana Motzfeldt er landstjórafrú Grænlendinga og býr í Nuuk. Hjónin Gunnar Bragi Guðmundsson, forstjóri eins stærsta sjávarútvegsfyrir- tækis Grænlendinga, og Hall- dóra Grétarsdóttir hjúkrunar- fræðingur búa í Nuuk. Sigurður Pétursson, fyrrverandi togara- skipstjóri býr í Kuummiit, skammt frá Kulusuk. Hann sneri baki við allsnægtalífi á íslandi til að setjast að í einu frumstæð- asta byggðarlagi á Grænlandi þar sem hann veiðir grálúðu á plastbáti eða niður um ís.Sjómannablaðið Víkingur birt- ir kafla úr frásögn Sigurðar. A Upphaf togarasjómennskunnar „Árið 1968 kynntist ég togarasjómennsku fyrst þegar ég fór á Neptúnus með Jóhanni Sveinssyni skipstjóra. Þetta var lærdóms- ríkur tími en útgerðarmaðurinn var Tryggvi Ófeigsson sem á þeim árum var þjóðsagnapersóna eftir farsælan feril sem skipstjóri og aflakló. Fyrst þegar ég kom um borð í dallinn í Reykjavíkurhöfn leist mér ekkert á blikuna. Þarna var æði subbulegt miðað við það sem ég þekkti af bátunum fyrir vestan. Þar sem ég var að klöngrast yfir dekkið hitti ég strák sem spurði mig hvort ég hefði verið á Nept- únusi áður. Ég sagði svo ekki vera og ég væri að fara í minn fyrsta túr. „Þú veist ekki hvað þú ert að fara út í. Skipstjórinn hérna er kol- vitlaus og rotar þig ef þú stígur í vitlausa löpp,” sagði hann og alvar- an skein úr hverjum andlitsdrætti. Mér leist orðið ekkert á þetta æv- intýri mitt. Þetta var að kvöldlagi og dimmt þarna á dekkinu þar sem væntanlegur skipsfélagi varaði mig við því er verða skyldi. Síðan er haldið úr höfn og ég fór upp í brú og hitti þennan skip- stjóra sem hafði slíkt orð á sér. Jóhann var hár maður og grannur og sagði fátt. Ég heilsaði honum með lotningu minnugur þess að hann gæti átt það til að rota mig. Ég var svo skráður á skipið og síðan voru landfestar leystar og haldið áleiðis suður fyrir land. Við gerðum klárt á dekkinu en fórum síðan í koju. Suður af Vestmanna- eyjum var ræst og okkur sagt að fara á dekk til að láta trollið fara. Ég dreif mig í gallann en þegar upp kom leist mér ekki á blikuna. Ljóslaust var á dekkinu og þegar ég leit upp í brúargluggana sá ég að þar voru hörkuslagsmál. Bátsmaðurinn hafði orðið vitlaus og skipstjórinn var eitthvað að laga hann til. Þessum handalögmálum Sjómannablaðið Víkingur - 40
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.