Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2000, Síða 22

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2000, Síða 22
máli hvort það er hér hjá okkur eða annars staðar í veröldinni. Þessir menn eru að hafa milljónir tonna af mannkyninu með rangri ráðgjöf líklega vegna þess að þeir eru að drukkna í meðaltölum og sligaðir af ábyrgð sem huglausir stjórnmálamenn hafa lagt þeim á herðar. í fyrrnefndri grein í Morgunblaðinu 1. okt. 1997 sagði ég meðal annars eftirfarandi sem reyndar er ekki merkilegasti kafli þeirrar greinar.:”Ef ég leyfi mér að skjóta á væntanlegan nýliðaárangur 1997 klaksins mundi ég segja að hann næði rúmlega 200 milljón nýliðum sem er svolítil hækkun frá því sem ég lofaði forstjóra Haf- rannsóknarstofnunar fyrir hrygningu í vetur. Alist hluti árgangsins upp utan íslandsmiða mun það koma sem hrein viðbót síðar.”( tilv. líkur). Nú þremur árum síðar hljóðar mat Hafrannsóknarstofnunar upp á 212 milljónir nýliða og jafnframt heyrast sögusagnir af ís- lenskum þorskum á erlendum hafsvæðum. Hvað varðar árangur þorskstofnsins frá 1997 til 2000 ætti að vera nokkuð Ijóst að þá var um mikla framför frá liðnu tímabili að ræða. 1997 árgangurinn nýtur góðs að afar litlum ofanáliggjandi árgöng- um auk þess sem tillegg hans mun hafa verið all gott og framleiðsla næstu ára styður hann til að byrja með. Erfiðara er að segja til um árgangana 1998 og 1999 en líklegt er að árangur þess fyrri hafi öfug áhrif á árangur hins seinni og þar sem ég hef ekki mikla trú á árangri 1998 árgangsins þrátt fyrir góða seiðavísitölu, tel ég að hann muni enda nálægt 150 milljónum en 1999 í 250 milljónum+. Það kæmi mér hins vegar á óvart ef 2000 árgangurinn næði veru- legum árangri þrátt fyrir allgóða seiðavísitölu. Allar þessar tölur miðast við uppeldi á íslandsmiðum og gætu því átt inni viðbót frá öðrum hafsvæðum.Eg viðurkenni að slíkur spádómur við þau skil- yrði sem nú eru jaðrar við fífldirfsku og líklega hefði verið skynsam- legra að segja að meðalárgangur áranna 1997-2000 verði í námunda við 200 milljónir nýliða plús væntanlega ein eða tvær Grænlandsgöngur síðar. Það skal viðurkennast að á umræddu tímabili náði þorskstofninn væntanlega að sinna skyldum sínum við umhverfið hvað varðar framleiðslu fæðueininga og mun það koma sem búbót í árangri ná- býlistegunda eins og ufsa, ýsu og flatfiska hvað varðar árganga frá og með 1997 og jafnvel í ástandi eldri árganga. Gelda stofninn Það sem á hinn bóginn veldur mér áhyggjum er að á þessu ári hófu valdhafar smáfiskavernd í stórum stíl og hjálpa því vel til við þá þróun sem reyndar er fólgin í fiskveiðikerfi okkar, að gelda stofn- inn og koma þannig í veg fyrir að hann geti spilað sína eðlilegu rullu í vistkerfinu. Það er hættulegt að reyna að ala stóra smáfiska- árganga með því að fórna framleiðnasta hluta stofnsins. Þetta ættu vísindamenn að hafa lært af biturri reynslu því ekki skortir dæmin. Sóknaraukning sem mjög stórir nýliðaárgangar hafa í för með sér vegna aflareglunnar samfara smáfiskavernd veldur ofsókn á þroskaðasta hluta stofnsins og þar með tímabundinni geldingu hans. Lítil framleiðsla sem kemur í kjölfarið á ekki mikinn séns vegna ofanáliggjandi samkeppni og afráns og þar með kemur hugs- anlega langt tímabil lélegrar nýliðunar. Apstekið liþurð og lægra verd Um lei<5 og vi<5 fjökkum fyrir viðskiptin á árinu sem er a<5 líc5a, óskum við sjómönnum og fjölskyUum feirra gleðilegra jóla og farsæUar á nýju ári. Starfsfólk Apóteks 22 - Sjómannablaðiö Víkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.