Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2000, Qupperneq 24
Að frumkvæði Stýrimannaskólans í Reykjavík var haldinn
fundur í október um fjarnám fyrir sjómenn
!<y5ir0iám i
Guðjón Ármann Eyjólfsson, skólameistari Stýrimannaskólans í
Reykjavík, setti fundinn og bauð fundarmenn, sem voru um
40, velkomna. Síðan flutti hann stutt ávarp sem um leið var inn-
gangur að fundarefninu. Hann minntist m.a. á að á vordögum 1999
var undirritaður samstarfssamningur milli Stýrimannaskólans í
Reykjavík, Verkmenntaskóla Austurlands, Farmanna- og fiski-
mannasambands íslands og þriggja fiskvinnslu- og útgerðarfyrir-
tækja á Austurlandi, Síldarvinnslunnar í Neskaupstað, Hraðfrysti-
húss Eskifjarðar og Skipakletts á Reyðarfirði, um að stefnt skuli að
því að hefja fjarnám fyrir sjómenn og koma námsefni sjávarútvegs-
brautar á tölvutækt form. Þá var á síðasta ári undirritaður sam-
starfssamningur milli Fjölbrautaskóla Suðurnesja og Stýrimanna-
skólans um samvinnu og eflingu náms og fræðslu á sviði útgerðar
og fiskveiða. Guðjón Ármann benti á að fjarnám er í hraðri þróun
og nauðsynlegt að Stýrimannaskólinn í Reykjavík og aðrar mennta-
stofnanir í þágu sjávarútvegs og siglinga fylgist vel með á þessu
sviði, hagnýti sér þá möguleika sem þessi nýja tækni býður nem-
endum og kennurum upp á.
Framsöguerindi
Fyrsti frummælandi var Helga M. Steinsson, skólameistari Verk-
menntaskóla Austurlands. Hún rakti sögu þeirra tilrauna sem gerðar
höfðu verið með fjarnám fyrir sjómenn og samstarf við Stýrimanna-
skólann í því efni. Margir byrjunarörðugleikar hefðu verið yfirstignir
og margt hefði skýrst í þessu sambandi. Mjög vel hefði komið fram
hve marga sjómenn vantar tilfinnanlega grunnmenntun sem hefði
átt sinn þátt í því að sjö nemendur hættu mjög fljótlega námi.
Pálmi Hlöðversson er kennari við Stýrimannaskólann í Reykjavík
og hefur unnið að í fjarkennslumálum á vegum Stýrimannaskólans.
Hann ræddi m.a. um hina ýmsu möguleika við mismunandi útfærsl-
ur fjarkennslu. Pálmi sagði að fjarnám fyrir þá sjómenn, sem yrðu
að vera tengdir interneti um gervihnattakerfi, gæti verið kostnaðar-
samt. Nauðsynlegt væri að nýta vel tímann sem sjómaðurinn væri í
frii í landi. Tölvutæknin byði upp á nýja og spennandi möguleika en
einnig væru ýmsir örðugleikar. Tímasetningar yrðu að vera sveigj-
anlegar.
Hjalti Jón Sveinsson skólameistari Verkmenntaskólans á Akureyri
ræddi m.a. um þann alvarlega vanda sem stafaði af því hversu fáir
sækja skipstjórnarnám. Gera þyrfti námið aðlaðandi og laga það að
breyttum þjóðfélagsaðstæðum. Fjarnám væri vissulega ein leið til
að bæta úr því, öll skilyrði væru fyrir hendi, vilji væri allt sem þyrfti.
Þá lagði hann áherslu á í erindi sínu og einnig síðar á fundinum að
samtök atvinnulífsins styrktu þessa viðleitni.
Karl Kristjánsson deildarsérfræðingur í menntamálaráðuneytinu
lýsti m.a. viðhorfi ráðuneytisins til framtíðar fjarkennslu almennt.
Hann sagði að stefna ætti að því að fjarkennsla yrði hluti af
kennsluframboði hvers skóla, og skýrði á hvern hátt unnt væri að
ná því markmiði. Hann gat um átta símenntunarstöðvar, sem væru
í öllum landshlutum, og hafa þær séð um að dreifa og miðla náms-
efni. Karl vék að aðsókn að skipstjórnarnámi. Hann sagði að það
hefði oft komið fyrir að settar hefðu verið upp námsbrautir sem síð-
ar hefði komið í Ijós að afar fáir vildu sækja. Hann sagði það nánast
vera áráttu að vilja setja almennar greinar á undan fagnámi.
Lárus Þ. Pálmason, kennari við Fjölbrautaskóla Suðurnesja og
stundakennari við Stýrimannaskólann í Reykjavík lýsti fjarnámi sjó-
manna á vegum skólans í faggreinum netagerðar, þ.m.t. nemenda
Stýrimannaskólans í Reykjavík.
Sigríður Ingvarsdóttir, Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins, upplýsti
um vinnu þeirrar stofnunar að margmiðlunardiski fyrir sjómenn og
lýsti áhuga sínum á samstarfi á sviði fjarnáms fyrir sjómenn. Síð-
asta framsöguerindið hélt Þorvaldur Pálmason, verkefnisstjóri við
Símenntunarstofnun Kennaraháskóla íslands. Um var að ræða
mjög skýra greiningu á fjarnámi og lýsingu á þróun þess.
Hrönn Þormóðsdóttir frá fyrirtækinu Gagarín veitti fundarmönnum
upplýsingar um margmiðlunardiska, en fyrirtækið hefur unnið að
verkefninu með Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins. í lokin voru al-
mennar umræður. ■
24 - Sjómannablaöiö Víkingur