Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2000, Page 34
mm
íTMJIlLLLlllM'jTh• I i <í--1 t i iOiBil’i I
Það hefur ekki verið tjaidað til einnar nætur við ráðningi
forstjóra Eimskips til þessa. Frá stofnun félagsins árið
1914 hafa aðeins fimm menn gegnt því starfi. Hver þeirra
hefur haft sinn stjórnunarstíl. Þannig var Óttarr Möller
þekktur fyrir að umgangast starfsfólkið mikið og sagt er a<
hann hafi komið í eitthvert af pakkhúsunum á hverjum
degi. Hörður Sigurgestsson þótti stjórna á annan og óper-
sónulegri hátt. Þann 12. október síðast liðinn tók Ingi-
mundur Sigurpálsson við starfi forstjóra Eimskips og það
á eftir að koma í Ijós hvaða stjórnunarstíl hann hefur. Ingi-
mundur er fæddur 1951 og því á besta aldri. Gæti þess
vegna verið forstjóri næstu 20 árin. Sjómannablaðið Vík-
ingur spjallaði við Ingimund þegar hann hafði aðeins verið
tvær vikur í starfi. Ingimundur hefur rólega og alúðlega
framkomu en það er festa í svipnum. Hann er fyrst spurðui
hvernig honum lítist á nýja starfið.
Vona að
skipin
t
„Mór líst mjög vel á allar aðstæður. Hér er unnið mikið og gott
starf og margir hæfir starfsmenn þannig að ég get ekki annað en
hlakkað til að takast á við þetta verkefni.”
- Hefur þú einhvern tíman stundað sjóinn?
„Nei, ég hef aldrei unnið til sjós. Hins vegar ólst ég upp á sjó-
mannsheimili hjá afa mínum og nafna, Ingimundi Jónssyni skip-
stjóra og útvegsbónda frá Strönd á Stokkseyri. Þar var gestkvæmt
mjög og mikil umræða um sjósókn og fiskveiðar. Þegar ég var bæj-
arstjóri á Akranesi sat ég sem slíkur í stjórn útgerðarfélagsins
Krossvíkur sem Akraneskaupstaður átti hlut í. Þar kynntist ég vel
útgerðinni auk þess sem embætti bæjarstjóra fylgdi staða hafnar-
stjóra og ég kom því nokkuð að uþþbyggingu hafnarinnar þar og
rekstri hennar.”
- Eimskip er með starfsemi í mörgum löndum. Hefur þér á þess-
um stutta tíma frá því þú tókst við gefist tækifæri til að kynnast
starfinu erlendis af eigin raun?
„Ég er búinn að fara eina ferð til Rotterdam þar sem er stærsta
starfsstöð Eimskips erlendis. En stöðvarnar eru alls um 20 í 11
löndum svo ég á eftir að fara víða. Hjá Eimskip vinna um 1.200
starfsmenn, þar af um 800 hér innanlands og um 400 erlendis.
-Hefur þú komið um borð í nýju fossana?
Ég fór um borð í nýja Goðafoss þegar hann kom til landsins og
svo um borð í nýja Dettifoss sem var að koma til hafnar. Dettifoss
var opinn starfsmönnum og fjölskyldum þeirra til skoðunar og það
var gaman að sjá hve margir notuðu þetta tækifæri til að líta á skip-
ið. Þetta er stórglæsilegur farkostur eins og raunar Goðafoss einnig
og er athyglisvert hvað skipin eru vel með farin. Þau eru sem ný
þótt þau hafi verið fimm ár í notkun.”
Hörð samkeppni
- Nú gerðist það um svipað leyti og Dettifoss kom að Brúarfoss
var afhentur nýjum eigendum og þar með hvarf íslenski fáninn af
síðasta fossinum. Er þess að vænta að þjóðfáninn sjáist aftur á
skipum Eimskips ef frumvarp um breytingu á lögum um skráningu
skipa nær fram að ganga?
„Ég ætla að vona það. Þeir sem standa í hörðum samkeppnis-
rekstri verða auðvitað að leita allra leiða til að lágmarka tilkostnað.
Einn þáttur í því er skattlagning fyrirtækjanna og skattaleg meðferð
á skipum. Því hafa menn eðlilega orðið að leita allra leiða til þess
að finna hagkvæmustu niðurstöðu í því. Ef að reglur hér á landi
verða með þeim hætti að sambærilegt sé því sem gerist erlendis
þá liggur metnaður manna til þess að skrá skip hér á landi.”
- Hvernig er útlitið i rekstri Eimskips um þessar mundir?
„Rekstrarumhverfið er mjög erfitt þessa mánuðina. Gengislækk-
unin hefur töluvert að segja, sérstaklega þegar um er að ræða
miklar fjárfestingar sem að hluta til eru fjármagnaðar með erlendum
gjaldeyri eins og þessi nýju skip sem við vorum að kaupa. Þá hefur
olíuverðshækkunin talsverð áhrif. Þar fyrir utan er hörð samkeppni
á þessum markaði og ekki bara að íslensku skipafélögin séu að
keppa innbyrðis heldur er líka samkeppni við erlenda aðila í sigling-
um. Rekstrarumhverfið er því krefjandi. Það hafa verið miklir flutn-
ingar hjá okkur en nú eru uppi teikn um að þessi mikla þensla sem
verið hefur sé eitthvað að hjaðna og það segir fljótt til sín í sam-
drætti í innflutningi. Það hefur þó ekki komið fram að neinu marki
ennþá. Það er hins vegar búið að renna styrkari stoðum undir
rekstur Eimskips, ekki síst með þátttöku í fjárfestingarstarfsemi.
Rekstur fyrirtækisins er í meginatriðum tvíþættur; annars vegar
Sjómannablaðið Víkingur - 34