Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2000, Qupperneq 51

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2000, Qupperneq 51
Núpur BA frá Patreksfirði ^igorn fyrir linubata Árið 1993 byrjaði Vaki-DNG að þróa LineTec átaks- og lengdar- mælibúnað fyrir línuveiðar. í upphafi var aðeins um mælikerfi að ræða en fljótt komu upp hugmyndir að reyna að stjórna línuspilinu eftir þessum upplýsingum. Nú er svo komið að kerfið er í öllum ís- lenskum beitningavélabátum og mikill áhugi í Noregi, Færeyjum og víðar. Þörf fyrir nákvæmni Á línuveiðum er mjög mikilvægt að stjórna hraðanum á spilinu af mikilli nákvæmni. Bæði vegna þess að vinna með yfir 30 þúsund króka á dag krefst þess að menn haldi vel á spöðunum og einnig að ekki sé dregið of hratt því þá slitnar fiskur af línunni sem þegar hefur bitið á agnið, og tapast því. Þetta verður svo enn vandasam- ara þegar veður versna. Áhrifaþættir á þetta ferli eru mjög margir, straumar, línutegundir, fiskitegundir, veður, andófið, ástand spilbún- aðar um borð og svo mætti lengi telja. En það að fá mælingu á hraða og lengd var skipstjórunum veruleg hjálp. Þá er ótalinn þáttur átaksins, þvf það að taka ekki of mikið á í festum gerir það að verk- um að hætta á sliti er svo verulega miklu minni og þar af leiðandi ætti lína síður að tapast. Einnig hjálpar átaksstýring til við að lengja líftíma línunnar því ef tekið er of fast á línunni þá tapar hún teygju- eiginleikum. Þessar aðstæður urðu til þess að starfsmenn íslenskrar Vöruþró- unnar (nú sameinað inn í Vaka-DNG hf) og skipstjórar á línuskipun- um fóru að kasta sín á milli hugmyndum að kerfi til að mæla þessa hluti og síðar að þróun til að stjórna eftir þessum mælingum. Eftir langt ferli voru svo sett LineTec vöktunarkerfi um borð í Skarf GK, Kóp GK og Ásgeir Frímanns ÓF árið 1995. Síðan þá hefur LineTec stjórnkerfið verið þróað og kerfið heldur utan um mælingar og að- gerðir langt umfram það sem farið var af stað með. Eiginleikar LineTec Line Tec stjórnkerfið fyrir línuveiðar hefur sannað sig sem mjög öflugt hjálpartæki við línuveiðar. Með kerfinu hafa notendur náð að lækka veiðarfærakostnað, auka afköst við dráttinn, fækka þeim fisk- um sem slitna af línunni og bæta beitninguna umtalsvert. Kerfið hefur reynst mjög hagkvæmur kostur og er orðinn hluti af staðal búnaði línuskipa á íslandi og er að ryðja sér til rúms í Færeyjum, Noregi og víðar. Nýrri viðbót er svo Beituvakinn - kerfi til að fylgjast með beitningarhlutfallinu frá beitningavélinni. Þá er nemum komið fyrir í beitningavélina og í rennuna frá henni til að telja króka og beitur. • LineTec mælir átak og dráttarhraða á línu og færi, og birtir þær upplýsingar á LineTec skjánum. • Stillanleg viðvörun er fyrir átak og hægt er að velja hvort dráttar- hraði er mældur í krókum á mínútu eða í metrum á mínútu. • Með mælingu á dráttarhraða er auðvelt að fylgjast með og halda fullum afköstum við veiðar. • Upplýsingar um átak minnka líkur á að lenda í erfiðum festum og getur þannig komið í veg fyrir tap á veiðarfærum og dýrmætum tíma frá veiðum. • LineTec telur afla á hvern rekka og geymir þær upplýsingar á- samt upplýsingum um dagsetningu, tíma, staðsetningu og lengd línu. Þessar upplýsingar birtast jafnóðum á “vakttöflu” ásamt því að þær eru geymdar í gagnagrunni. • Með þessu móti eykur LineTec kerfið upplýsingaflæði á milli vakta og auðveldar að greina hvar mestur afli fæst og þá hvar sé best að leggja næst. • LineTec gagnagrunnurinn geymir dýrmætar upplýsingar um hverja veiðiferð og hægt er að framkvæma leit eftir staðsetnigu, tíma eða nýtingu á hvern rekka. Með myndrænni framsetningu er auðvelt að greina hverja veiðiferð og fá yfirlit yfir hana eina sér eða allar til samans. Fjárfesting sem skilar sér!! Það er auðvelt að sýna fram á mjög stuttan endurgreiðslutíma við fjárfestingu í LineTec, allt niður í 2-5 mánuðil! Kerfi sem skilar nákvæmari stjórnun, sannanlega fleiri fiskum og lægri veiðarfæra- kostnaði auk þess að skipstjórar segjast geta dregið 2-5 þúsund ► Sjómannablaöið Vikingur - 51
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.