Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2000, Side 52
fleiri króka á dag, er að sjálfsögðu mjög hagkvæmur fjárfestinga-
kostur fyrir línuútgerðir. Reynsla núverandi notenda hefur sýnt að
með tilkomu búnaðarins hafa þeir náð að bæta beitningu um allt að
10%. Ljóst er að hvert prósentustig upp eða niður í beitningu hefur
samsvarandi áhrif á afla, því er um gríðarlega hagsmuni útgerðar
og áhafnar að ræða.
Næstu skref í þróun
LineTec er kerfi sem hefur þróast mikið og batnað með samvinnu
við íslenska skipstjóra. Nú þegar hefur Beituvakanum verið bætt við
og “slæðukerfið” verður sett upp til prufu á næstu vikum. Gagna-
bankinn er mjög mikilvægur og verður þróaður áfram til þess að
verða auðlæsilegri og geti gefið einfaldar staðlaðar skýrslur sem
t.d. geti verið sendar sjálfkrafa um gervihnött á útgerðina t.d. á
hverjum morgni. Tengingar við fleiri tæki í brúnni, geymsla á gögn-
um inná t.d MaxSea kortakerfum o.fl. Einnig er áhugi á að þróa
fiskateljarann upp í mælingu á lengd og þyngd og jafnvel að hægt
verði að flokka fisk í vinnslunni á grunni þeirra upplýsinga. En eitt
er víst að sífellt er gerð meiri ávöxtunarkrafa á veiðarnar og krafist
af þeim að skila betri fiski, auk þeirrar ábyrgðar sem fiskveiðistjórn-
unarkerfið hefur sett á herðar sjómönnum. Þá er kerfi sem bætir af-
köst og skilar upplýsingum á notanlegu formi gott verkfæri.
Stýrivélaviðgerðir
Öll almenn rennismíði
og viðgerðarvinna.
Almenn járnsmíði.
Sjóheldar plasthurðir.
Varahlutir frá Scan
Steering - Ulstein -
Tenfjord - dælustöðvar
Stýrisblöð frá
Bot Gronningen.
Stýrívélaþjónusta
Gardars
LineTec skjánum er komið fyrir í brúnni
Véla- og skipaþjónustan Framtak
IBpkrialw
tri UtlHt
á hagstœðu verði
VÉLA- OG SKPAÞJÓNUSTAN FRAMTAK í Hafnarfirði hefur
tekið við sölu og þónustu fyrir ITUR dælur frá fyrirtækinu
BOMBAS ITUR á Spáni. ITUR dælur eru seldar á afar hag-
stæðu verði sem er fyllilega samkeppnisfært við annað sem í
boði er. Nú þegar hafa ITUR dælur verið seldar í þrjár nýsmíð-
ar íslendinga í Kína auk þess sem Eimskip og Norðurál hafa
pantað slíkar dælur.
BOMBAS ITUR er 80 ára gamalt fyrirtæki og þar starfa 240
manns. Fyrirtækið hlaut ISO-9001 viðurkenningu frá Lloyds
Register Quality Accurance árið 1994. ITUR framleiðir geysi-
lega fjölbreytt úrvai af dælum, bæði til notkun á sjó og i iðnaði.
Sölustjórar ITUR fyrir Evrópu og Asíu hafa heimsótt Framtak
og fulltrúar Framtaks hafa kynnt sér verksmiðjuna á Spáni og
framleiðsluna þar. Sú heimsókn fullvissaði þá enn betur um
það sem áður var vitað, að ITUR framleiðir hágæða vörur.
Því til staðfestingar má benda á, að spönsku togararnir sem
komu nýir til íslands upp úr 1970 voru með ITUR dælur og þær
eru enn í notkun. Framtak stefnir á að eiga helstu gerðir af
dælum á lager ásamt varahlutum og stuttur afgreiðslutími er á
sérpöntunum. Dælurnar fást í fjölmörgum útfærslum; úr steypu-
járni, kopar eða riðfríu, láréttar eða lóðréttar, án rafmótors eða
með rafmótor á undirstöðu, með áföstum rafmótor
(monoblock), með bensín- eða dieselvél. Ef dæla er afgreidd
með rafmótor notar ITUR aðallega hina viðurkenndu ABB raf-
mótora. Einn af reyndustu vélfræðingum Framtaks, Jón Aðal-
steinn Jónsson, mun starfa með sölu- og markaðsdeild við
markaðssetningu og þjónustu á dælunum.
52 - Sjómannablaðið Víkingur