Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2000, Side 59
ekki fengið greidd laun sín í eitt og hálft ár. Ákváðu þeir því að taka
til róttækra aðgerða en þær eru að ef þeir fái ekki greidd laun sín
muni þeir sökkva skipunum hægt og bítandi í höfninni. Þegar þetta
er skrifað hafa þeir fyllt eina iest í hverju skipi af sjó og munu ætla
að halda því áfram á þann veg að í hverri viku verði ein lest til við-
bótar sjófyllt. En það eru meira en launin sem þeir eru að krefjast
með þessum aðgerðum sínum og það er engu að síður mikilvægt,
en það er hver eigi þessi skip. Skipin voru á sínum tíma seld til
kýpvreskrar útgerðar eftir að fyrri eigandi, Vostoktransflot, varð
gjaldþrota en svo virðist sem nýji eigandinn sé hreinlega ekki til.
Það var eins gott að áhöfnin á Odinkova fór ekki út í slíkar aðgerð-
ir.
Mengun frá skipi
Gin og klaufaveiki sem kom upp á bóndabæ skammt utan
Durban í Suður Afríku er talin eiga upptök sín frá uppsópi og rusli
úr lest skips sem hafði haft viðkomu í höfninni í Durban. Yfir 600
svín og nokkur naut voru aflífuð í kjölfar sýkingarinnar en gin og
klaufaveiki hefur ekki orðið vart þar í landi síðan 1958.
Farmi stolið
Þann 25 september s.l. var tankskipinu Petchem, sem er 3,984
tonn að stærð, rænt þar sem það var á siglingu undan Indónesíu.
Var skipverjum haldið föngnum meðan farmur skipsins var fluttur
yfir í annað skip. Skipið var búið að vera á siglingu í tvo daga þeg-
ar sjóræningjar réðust til uppgöngu og tóku yfir stjórn skipsins. Eftir
að skipverjarnir höfðu verið lokaðir inni kom óþekkt tankskip sem
lagðist utan á Petchem og farminum sem var 2.200 tonn af gasolíu
var dælt milli skipanna. Áhöfninni tókst að losna úr prísundinni sól-
arhring eftir að sjóræningjarnir yfirgáfu skipið en ekkert er vitað um
afdrif farmsins. Mjög svipað atvik átti sér stað á sömu slóðum fyrir
um tveimur árum síðan og er talið að um sömu aðila hafi verið að
ræða. Petchem var í flutningum á vegum Shell þegar farminum var
rænt.
Allir að leita að grænna grasi
Siglingaráðherra Sri Lanka hefur lagt fram lagafrumvarp á þingi
landsins þar sem gert er ráð fyrir mjög strangri refsingu til sjó-
manna. Um er að ræða lög sem fjalla um viðurlög til handa sjó-
mönnum sem strjúka af skipum auk að krefja skipstjóra hærri launa
en samið var um. Refsing við þessum brotum varði fangelsi og
sektum. Það hefur farið mjög vaxandi að þarlendir sjómenn yfir-
gefa skip sín með því að strjúka úr skipsrúmi og eru þess dæmi að
sjómenn hafi stokkið fyrir borð þegar verið er að sigla um Evrópsk-
ar hafnir og gera þeir það í þeirri von að fá betri laun á skipum ann-
arra þjóðfána. Einnig er það áberandi að sjómenn sem hafa ráðið
sig í skiprúm krefji skipstjóra um hærri laun en þeir hafi samið um.
Það sem af er þessu ári hafa 25 sjómenn stungið af skipum undir
fána Sri Lanka.
„Týndur farþegi”
Farþegi sem talinn var hafa fallið fyrir borð af farþegaskipinu
Dawn Princess þar sem það var á siglingu í Alaska fannst heima
hjá sér við bestu heilsu. Um var að ræða 73 ára konu sem var far-
þegi á skipinu en hún lenti í rifrildi við ferðafélga sinn meðan skipið
lá við bryggju í Juneau og ákvað því að yfirgefa skipið án þess að
láta nokkurn vita af því. Dagin eftir að skipið lét úr höfn varð ræst-
ingafólkið vart við að konuna vantaði þar sem ekki hafði verið farið
um klefann í sólarhring. Skipstjórinn lét strandgæsluna vita og var
þegar hafin leit að konunni þar sem enginn skipverji hafði orðið var
við að hún færi í land né hafði það verið skráð í tölvur skipsins.
Leitað hafði verið á 225 sjómílna svæði með skipum og þyrlum
þegar uppgötvaðist að konan sat heima hjá sér í Bandaríkjunum og
það við hestaheilsu. Það er eins gott að vera ekki að æsa upp
gamlar konur í skemmtisiglingum.
'ir
V •
Mikil aukning hefur orðið á hollenska kaupskipstólnum á síðustu
þremur árum.
Eiginkonan má koma með
Ég hélt satt best að segja að ég væri að lesa bók frá fyrri hluta
síðustu aldar þegar ég rakst á frásögn um að nú mættu kínverskir
skipstjórar hjá COSCO ríkisskipafélaginu taka eiginkonur sínar með
í siglingu. Að vísu er það ekki skipstjórinn einn sem hefur fengið
leyfi til að taka eiginkonu sína með því þetta nær einnig til yfirvél-
stjórans og pólitíska leiðtogans um borð. Búist er við að önnur kín-
verks skipafélög munu einnig taka upp þennan hátt á næstu tveim-
ur árum
Þar fjölgar kaupskipunum
Hollenski kaupskipsflotinn hefur vaxið um 46% á síðustu fjórum
árum en á sama tíma hefur hollenskum farmönnum einungis fjölg-
að um 11,5%. Ástæðu þessa miklu aukningar á kaupskipastólnum
má rekja til skattaívilnanan sem ríkisstjórnin kom á.
Pöbba„rölt”
Breskur skipstjóri var nýlega dæmdur til 14 mánaða réttindamiss-
is eftir að hann ásamt þremur öðrum skipverjum á tankskipinu
Matco Clyde ákváðu að skreppa á pöbb. Það hefði eflaust verið í
lagi ef skipið hefði verið bundið við bryggju en svo var nú ekki því
það lá til akkeris í Moray firði og þurftu þeir að sigla um 14 mílna
leið meðfram ströndinni til að komast á pöbbinn. Eftir að hafa eytt
fimm tímum á pöbbnum héldu þeir af stað til skips en þá vildi ekki
betur til en að þeir urðu bensínlausir og rak til hafs. Var þeim síðar
bjargað en ekki af eigin skipi. Eins og áður sagði fékk skipstjórinn,
sem hafði 33 ára siglingatíma, réttindin af sér dæmd en hann lofaði
fyrir dómnum að slíkt myndi aldrei endurtaka sig.
Sjómannablaöiö Víkingur - 59