Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2000, Síða 70

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2000, Síða 70
iTíxTI i Ungur maður ætlaði að gleðja kærustuna sína á jólum. Þau höfðu ekki verið lengi saman og eftir dágóða umhugsun ákvað hann að kaupa handa henni loðfóðraðar lúffur. Það væri rómantísk gjöf en ekki of persónuleg. Hann fór í bæinn með yngri systur kærustunnar og hún hjálpaði honum að velja lúffurnar. Sjálf keypti systirin sér nærbuxur. Afgreiðslustúlkan ruglaði þessu saman þegar hún pakkaði hlutunum inn og ungi maðurinn sendi kærustunni því nær- buxurnar án þess að vita af því. Hann skrif- aði hjartnæmt bréf með pakkanum og að sjálfsögðu ætlaðist hann til að hún læsi bréfið áður en hún tæki utan af gjöfinni. Bréfið var svohljóðandi: Ég valdi þessa gjöf vegna þess að þú ert vanalega ekki i svona þegar við förum saman út á kvöldin. Ég hefði valið aðeins lengri ef systir þín hefði ekki verið með, en hún er alltaf í svona litlum sem erfiðara er að fara úr. Liturinn er dálítið viðkvæmur, en af- greiðslustúlkan sýndi mér sitt eintak sem hún hafði verið í í þrjár vikur án þess að sæist á þeim. Ég bað hana að máta eintak- ið þitt og hún var virkilega sæt. Ég vildi óska að ég fengi að klæða þig í gjöfina í fyrsta skipti vegna þess að ég er viss um að aðrar hendur munu snerta hana áður en ég fæ tækifæri til að hitta þig aftur. Þegar þú ferð út mundu þá að blása í hana áður en þú leggur hana frá þér vegna þess að hún verður yfirleitt dálítið rök. ímyndaðu þér bara hvað ég á eftir að kyssa gjöfina oft á næstu mánuðum. Ég vona að þú verðir í þeim á laugardagskvöldið. Ástarkveðja. p.s. Nýjasta tískan er að bretta aðeins uppá þær og láta loðfeldinn aðeins sjást. Ertu boðinn í mat á nýjársdag? Þú verður að fara og það sem verra er; búast má við að þar verði fullt af gestum. Hafi gleði gamlárskvölds staðið framundir morgun verður ekki hjá því komist að gera ákveðnar ráðstafanir ef þú átt að treysta þér í matar- boðið: Byrjaðu á að slökkva á útvarpsvekjaran- um og opna augun. Veltu þér framúr rúminu og skríddu framá bað. Burstaðu tennurnar rækilega. Drekktu eins mikið af vatni og þú getur. Settu tvær parkodin út í og drekktu meira vatn. Farðu í sturtu eða í bað ef þú treystir þér ekki til að standa lengi. Rakaðu þig. Drekktu meira vatn og burstaðu tenn- urnar aftur. Nú er komið að morgunverði og heilsu- bótaræfingum. Fáðu þér kornfleks með mik- illi mjólk og púðursykri, ristað brauð, egg eða hvað sem þú getur haldið niðri. Drekktu mikið af heitu kaffi eða te. Stattu svo upp og taktu til við ná fullri heilsu. Eftirtalin með- ul eru sögð áhrifarík: I. Freyðvín (Kampavín ef þú hefur efni á og ekki sjá eftir því sem hellist niður vegna skjálftans). Ferskur appelsínusafi. Blandað í hlutföllunum þremur á móti ein- um. II. Tvær teskeiðar af viskí. Þrjár teskeiðar af rjóma. Þrjár teskeiðar af hunangi. Settu þetta í blandarann ( eða hrærðu saman ef þú þolir ekki hávaða) með ís og drekktu hægt. III. Ein matarskeið af sítrónusafa. Ein matarskeið af Worcesershire sósu. Sex dropar af Tapasco. Einn sjúss af vodka. Hrærðu með ís og skelltu þessu í þig. Burstaðu svo tennurnar vel og lengi. Þvoðu þér í framan úr köldu vatni, greiddu þér og hertu bindishnútinn. Ef þú treystir þér ekki enn i veisluna þá er að stinga á sig vasapela og drífa sig á stað - í leigubíl. Reiðufé er krítarkort launþegans. Ríkur maður er fátæklingur með peninga. Skattgreiðandi er maður sem þarf ekki að vera í BSRB til að vinna fyrir ríkið. Banki er stofnun sem lánar þér regnhlíf í sólskini og heimtar hana aftur um leið og það fer að rigna. 70 - Sjómannablaðið Víkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.