Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2005, Side 18
Stjórnendur Samskipa veittu i febrúar
viðtöku nýju 11 þúsund tonna skipi
félagsins við hátíðlega athöfn í Hamborg
að viðstöddum Ólafi Davíðssyni sendi-
herra og fleiri góðum gestum. Hlaut
skipið nafnið Helgafell og leysir af hólmi
gamla Helgafellið á siglingaleiðinni milli
íslands og Evrópu. Pað kom í hlut Arn-
eyjar Guðmundsdóttur, starfsmanns í
mötuneyti Samskipa, að nefna nýja skip-
ið en hún var valin til verksins úr hópi
allra kvenkyns starfsmanna félagsins á Is-
landi í happdrætti sem fram fór við
vígslu nýrra höfuðstöðva Samskipa.
Skipið getur flutt 908 gámaeiningar
(TEU), eða rúmlega 200 gámaeiningum
meira en gamla Helgafellið, og burðarget-
an er allt að 11.143 tonn. Ganghraði
skipsins er allt að 18,4 sjómílur á klst. og
það er 138 metra langt og 21 metra
breitt, í áhöfn eru 11 menn, allt íslend-
ingar, en skipið er skráð í Færeyjum af
rekstrarlegum ástæðum.
Helgafellið nýja er systurskip Amarfells-
ins, sem Samskip fengu afhent i janúar.
Bæði skipin vora sérhönnuð fyrir Samskip
til að standast siglingar félagsins milli ís-
lands og Evrópu, jafnframt því sem krafa
var gerð um að þau væra þannig útbúin að
þau gætu athafnað sig í þröngum höfnum.
Þýska skipasmíðastöðin JJ Sietas tók að
sér smíði skipanna, eftir ítarlegan verð-
samaburð. og nam kostnaður við hvort
skip um 1,7 milljarði íslenskra króna (21
milljón evra). Verkefnið var fjármagnað
af I4SH Nordbank og eru skipin 1 eigu
skipasmíðastöðvarinnar en Samskip
leigja þau til sjö ára, með kauprétti að
þeim tíma liðnum. Með tilkomu nýju
skipanna hefur flutningsgeta Samskipa
milli íslands og Evrópu ríflega tvöfaldast.
Enn frekari slækkun flutningakerfisins er
ákveðin í sumar þegar stærri skip leysa
af hólmi gámaskipin Akrafell og Skafta-
fell.
Kynningarátak Rannsóknarnefndar
sjóslysa ber árangur
Aldrei fyrr hafa eins margar tilkynn-
ingar borist Rannsóknarnefnd sjó-
slysa eins og á nýliðnu ári. Alls bárust
nefndinni 152 tilkynningar á nýliðnu
ári, en meðaltal siðastliðinna 10 ára eru
um 117 mál á ári. Ekki svo að skilja að
lleiri slys hafi orðið á síðasta ári, heldur
er um að ræða betri og skilvirkari til-
kynningar en áður.Rannsóknarnefnd
sjóslysa (RNS) er skipuð af samgöngu-
ráðherra, og samanstendur nefndin af
fimm kunnáttumönnum, sem allir hafa
menntun og starfsreynslu á sviðum sem
sérstaklega nýtast við rannsóknir sjóslysa.
Siðastliðið haust opnaði RNS nýja
gagnvirka heimasiðu, http//: www.rns.is,
en þar er hægt að tilkynna um slys og ó-
höpp á sjó. Er næsta víst að rekja má
aukningu tilkynninga til nefndarinnar til
hinnar nýju heimasiðu. Heimasíðan er
ekki eingöngu sett í loftið til að auðvelda
tilkynningar heldur er tilgangur hennar
að upplýsa sjófarendur um eðli og orsak-
ir slysa, og hvar og við hvaða aðstæður
slys á sjó gerast. Umrædd síða er afar
vel úr garði gerð og inniheldur m.a. all-
ar skýrslur rannsóknarnefndarinnar, en
nefndin kannar orsakir allra sjóslysa
þegar islensk skip farast og rannsakar
öll slys þar sem manntjón verða. Á
heimasiðunni er einnig leitarforrit, með
mjög víðtækum leitarmöguleikum, sem
á að auðvelda sjófarendum að nálgast
gögn hvers slyss fyrir sig.
Rannsóknarnefnd sjóslysa leggur á-
herslu á að fá tilkynningar um öll óhöpp
og slys á sjó enda er tilgangur nefndar-
innar sá að rannsóknir hennar miði að
því að koma í veg fyrir slys um borð í
skipum og að auka öryggi til sjós.
18 - Sjómannablaðið Víkingur