Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2005, Qupperneq 21

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2005, Qupperneq 21
Þórður í eldhúsinu heima á Fálkagötu. á Freyju til þess að athuga hvort það væri laust pláss. Þeir svöruðu og sögðu að það væri nóg af lausum plássum, ég léti bara vita þegar ég væri ldár. Ég sagði svo starfinu lausu hjá Nesskip og þegar uppsagnarfresturinn var að renna út lét ég þá vita að hvenær ég losnaði og þeir sögðu mér bara að koma. Ég flaug til San Juan í Puerto Rico og fór þar um borð og hef verið á þessu skipi síðan. Ég byrjaði sem II. stýrimaður eins og venjan er og svo tók ég fljótlega við sem I. stýrimaður. Það eru þrír I. stýrimenn og þrír II. stýri- ntenn um borð í flestum þessara skipa svo þetta er stór hópur, eða samtals níu vakthafandi stýrimenn. Pað er eru alltaf tveir á vakt og þetta eru þrjár átta tíma vaktir sem við stöndum. Maður stendur sína álta tíma í einni fotu og á svo frí á milli sem er mjög þægilegt. - Eruð þið áfastri rútu? Já, við erum alltaf á sömu rútunni. Við förum frá San Juan til Aruba Nassau og síðan til St. Martin og St. Thomas, bandarísku Jómfrúreyjanna. Yfir sumar- mánuðina erum við með tvær rútur sitt hvora vikuna, frá apríl fram i nóvember. Þá förum við seinni vikuna frá San Juan til St. Thomas og St. Maarten, Antigua og St. Lusia og Barbados. Ristir aðeins níu metra Skemmtiferðaskipið Adventure of The Seas er 311 metra langt, 132 þúsund tonn. Það siglir undir fána Bahama. Þangað til nýja Queen Mary byrjaði að sigla í fyrra var þetta slærsla farþegaskip heims. Það er pláss fyrir uppundir fjögur þúsund gesti um borð en Þórður segir að það séu um 3.500 farþegar í hverri ferð að meðaltali. I áhöfn eru 1.200 manns sem eru talsverð viðbrigði frá Laxfossi og Freyju þar sem voru níu og elfefu um borð. - Starfið sjálft. Þetta er kannski ekki hefðbundin sjómennska? - Nei og þó. Þetta er auðvitað hefð- bundið þannig að við siglum skipinu og það breytist ekkert að því leyti. En öll dekkvinna og svona er aðallega fólgin í að mála, skúra og hvítþvo. Þetta er mikið hefðbundin vinna eins og á farskipunum nema við þurfum ekki að sjóbúa farminn - fáum það ekki! - í sjónvarpi eða bíóum sjást yfirmenn á svona skipum aðallega með glas í annairi hendi haldandi utan umfagra konu ineð hinni? - Það er nú ekki svo gott í raun. Við megum auðvitað vera innan um gestina og blanda geði við þá. Skipstjórinn held- ur móttökur fyrir farþega, kokkteilboð og svona og við megum auðvitað ræða við gestina en ef maður fer eitthvað að eiga við farminn þá er maður rekinn! Jú, maður fær voða fint uniform sem verður alltað að íklæðast þegar maður er með gestunum. Á vaktinni er ég með II. stýrimann til þess að vinna með mér því við erum ekki bara að sigla skipinu. Við erum líka með allt eldvarnareftirlit um borð, það eru reykskynjarar í hverjum klefa og hverju einasla rými. Eldvarnareftirlitið er mikið og mjög strangt. Svo sjáum við auðvitað um alla balllest og stöðugleika, sund- laugar og það er mikil vinna sem fer fram önnur en siglingin á skipinu. Annar okkur er að stýra og hinn er í því að taka símann og sinna ýmsum störfum. Svo erum við alltaf með einn háseta á vakt sem er á útkíkki. - Getið þig lagst uppað á öllum við- komustöðunum? - Já við förurn alls staðar upp að bryggju. Þótt skipið sé einir 70 metrar uppúr sjó ristir það ekki nema tæpa níu metra. Á hinum rútunum sem skip fé- lagsins sigla á hefur þurft að vera með báta en ekki hjá okkur. Sums staðar eru allt upp í fjögur skip samtímis við bryggju. Þú færð allt til rafsuðu hjá okkur Tæki, vír og fylgihluti ESAB rafsuðubúnaður fyrir þig Hanfncc hf Skútuvogiö 104Reykjavík L/alllUaa III sími5104100 • www.danfoss.is Sjómannablaðið Víkingur - 21

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.