Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2005, Qupperneq 27

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2005, Qupperneq 27
því að ásakanir Spánverja á hendur skipstjóra eigi enga stoð. Spánverjar hafa ásakað Apostolos um ósamvinnuþýði við stjórnvöld vegna ástands skipsins. Aftur á móti setur rannsókn- arnefndin fram athugasemdir við störf spænsk eftirlitsmanns flokkunarfélags skipsins sem kom um borð í skipið áður en slysið varð. Nú er að sjá hvort Spánverjarnir taki eitthvert mark á bahamísku rannsóknarnefndinni eða haldi áfram nornaveið- urn á hendur skipstjóranum. Skipstjóri Cap Anamur ásamt rekstrastjóra hjálparstarfsins með „gamla Arnarfellið" í bakgrunninn. Göfugt starf Skipstjóri, yfirstýrimaður og læknir um borð i skipinu Cap Anamur voru handteknir við komu skipsins til hafnar á Ítalíu í ágúst á síðasta ári. Voru þeir sakaðir um að koma með ólöglega innflytjendur til hafnar þar í landi en skipstjórinn bar því við að hann hefði bjargað fólkinu í hafi. Skipið Cap Anamur er rekið af samnefndum þýskum samtökum sem stofnuð voru árið 1979 til aðstoðar vietnömsku flóttafólki. Skip samtakanna fara til þeirra svæða þar sem flóttafólk er að ferðast langar vegalendir á sjó því til bjargar. Um borð í skipinu voru 37 flóttamenn frá Ghana, Nigeríu og Niger en skipstjórinn vildi ekki gefa upp hvar hann tók mennina upp. ftölsk yfirvöld telja þó að þetta hafi gerst á hafsvæðinu við Möltu. Flóttamennirnir voru allir settir í varðhald og munu verða sendir til síns heima. Fyrir þá sem vilja fræðasl meira um þessi samtök er bent á heimasíðu þeirra á slóðinni www.cap-anamur.org. Pví er svo við að bæta að skipið Cap Anamur er mörgum íslendingnum kunnugt en skipið sigldi hér i strandsiglingum á vegum Samskipa undir nafninu Arnarfell. Slæmt ástand skipa Skipstjóri alsírska skipsins Bechar sem fórst í óveðri undan strönd Alsírs nýlega hefur ásakað útgerð skipsins CNAN um vanrækslu í viðhaldi skipsins. Á sama tíma hefur hann einnig sakað útgerðina um að hafa mjög lágan staðal á öryggismálum og sjóhæfni skipa útgerðarinnar. Alsírska skipstjórnarmannafé- lagið stendur við bak skipstjórans í ásökunum á útgerðina en hún hefur saksótt félagið fyrir útbreiðslu á rógburði á hendur útgerðinni. Þýsku ríkisstyrkirnir Hin veika fjárhagsstaða Þýskalands hefur þvingað sambands- stjórnina í Berlín til að draga úr ríkisábyrgðum til þarlendra skipasmíðastöðva um allt að helming. Pess í stað ætlast stjórnin dl að einstök sambandsríki taki á sig styrkina þannig að ekki verði hrun í greininni. Petta getur reynst þeim þungur róður þar sem ríkisfjárlög fyrir 2005 gera ekki ráð fyrir slíku. Þýskar skipasmíðastöðvar hafa verið að fá stöðugar fleiri pantanir þar sem skipasmíðastöðvar í Asiu eru fullbókaðar lil lengri tíma. Til að vera samkeppnishæfar hafa skipasmíðastöðvarnar geta sótt um allt að 6% styrk miðað við umsantið smíðaverðmæti skips. Estonia ekki þögnuð Sænska ríkisstjórnin hefur nú krafist þess að ítarleg rannsókn fari fram á ný á orsökum þess að ferjan Estonia fórst fyrir 10 árum síðan. Ástæðuna má rekja til að sjónvarpsstöðin SVT var með þátt þar sem upplýst var að oft hefðu verið flutt rússnesk vopn með skipinu í ferðum þess milli Tallinn og Stokkhólms. Pessir flutningar hefðu verið með vitneskju einstaklinga í sænsku tollgæslunni. Ekki á hverjum degi Það var stór stund í sögu Eistlands í byrjun síðasta mánaðar þegar 3.800 tonna flutningaskip var sjósett við skipasmíðastöð- ina OU BLRT. Petta 88 metra skip er fyrsta skip af fimm sem skipasmíðastöðin hefur tekið að sér að smíða fyrir Damen skipasmíðastöðina í Hollandi. En af hverju stór stund? Jú í Eist- landi hefur ekki verið sjósett flutningaskip síðan á árunum fyrir seinni heimsstyrjöld. Meginverkefni skipasmíðastöðvarinnar hefur verið srníði á stáleiningum fyrir aðrar skipasmíðastöðvar í Evrópu. Vantar stál Stálskorturinn er farinn að hafa umtalsverð áhrif í skipa- smíðaiðnaðinum. Japanskar skipasmíðastöðvar hafa nú lengt af- hendingartíma skipa sem þar eru í smíðum þar sem afhending- artími stáls hefur lengst. Stálframleiðendur hafa ekki undan við framleiðsluna enda mikil eftirspurn eftir nýsmíðum. Hvar má drekka? Skipstjóri á einni af ferjum Hardanger Sunnhordalandske Dampskibsselskap fékk nýlega uppsagnarbréf eflir að hann hafði setið á polla á bryggjunni í Hufthamar í Noregi þar sem ferjur útgerðarinnar leggja að. Skipstjórinn senr hvorki var í vinnunni né klæddur í einkennisföt var að drekka bjór ásamt félaga sínum sem varð til þess að hann var rekinn frá útgerð- inni. Skipstjórinn var að vonum óhress með uppsögnina en talsmaður útgerðarinnar sagði í viðtali við Bergens Tidende að hjá útgerðinni væri svokölluð núll áfengisstefna en að öðru leiti vildi hann ekki tjá sig um málið. Ljóst er að víða eru útgerðir farnar að gera mjög strangar kröfur hvað varðar áfengisnotkun áhafna sinna. Sjaldgæft er þó að útgerðir skipti sér af frítíma- neyslu skipverja sinna en eflaust þurfa þeir að skýra reglur bet- ur út fyrir starfsmönnum sínum að þeir vilja ekki sjá þá vera að sulla í frítímum á vinnustaðnum og allra síst skipstjóra sína. Flutningaskip með sofandi skipstjóra slasaði húsráðanda við ásigling- una. Árekstur Húsráðanda í húsi á japönsku eyjunni Osaki fékk fremur óvenjulega heimsókn síðastliðið sumar þegar 500 tonna flutn- ingaskip, Shin Tsunetoyo, sigldi nokkra metra inn í hús hans. Sjómannablaðið Víkingur - 27

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.