Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2005, Page 39
Við erum að klappa Magna gamla
- segir Hilmar Kristinsson í Stálsmiðjunni
Jón Páll Ásgeirsson tók þessa skemmtilegu tnynd sem sýnir Magna vera að aðstoða gamla
Magna þegar verið var aðfæra hann til við athafnasvœði Stálsmiðjunnar í vetur.
Hinn fornfrægi dráttarbátur Magni
er til aðhlynningar hjá Stálsmiðjunni í
Reykjavtk. Þar á bæ bera menn hlýjar
tilfinningar til bátsins, enda var hann
smíðaður þar fyrir hálfri öld. Magni er
fyrsta stálskipið sem var teiknað og
smíðað hér á landi, en það var Hjálmar
R. Bárðarson sem teiknaði skipið og
hafði umsjón með smíðinni. Síðan
þjónaði Magni Reykjavíkurhöfn vel og
dyggilega áratugum saman þar til vélin
hrundi í honum fyrir um 15 árum. Þar
með var ferill hans sem dráttarbáts á
enda og annar Magni tekið við hlut-
verki hans.
- Við erum klappa Magna gamla,
búnir að mála hann og gera hann fal-
legan. Annars ætlum við bara að
geyma hann þar til verður ákveðið
hvað gert verður við hann, en Magni er
enn í eigu Reykjavíkurhafnar, sagði
Hilmar Kristinsson verkstjóri í Stál-
smiðjunni þegar Sjómannablaðið Vík-
ingur spurðist fyrir um hinn aldna
dráttarbát.
- Það ónýt í honum vélin og aðal-
vandamálið að ná í aðra vél þannig að þá
sé hægt að hreyfa hann. Við erum að
skoða hvað við getum gert. Skrokkurinn
er aðeins farinn að láta á sjá, enda var
hann búinn að liggja síðan vélin hrundi
um 1990. Það fer mjög illa með skip að
liggja svona lengi við hliðina á öðrum
skipum. En hann er langt í frá svo illa
farinn að ekki sé hægt að bjarga honum,
sagði Hilmar ennfremur.
I ljósmyndabók Hjálmars R. Bárðar-
sonar, Ljós og skuggar, eru myndir frá
smíði Magna. Þar sést meðal annars
þegar afturstefnið hafði verið reist og
verið var að lyfta á sinn stað hluta af
þiljurn í afturskipinu. Vegna þess hve
lyftigeta krana við brautina var tak-
mörkuð varð að miða stærð skipshlut-
anna, sem smíðaðir voru og settir sam-
an inni í verkstæðinu við þyngd þeirra.
Kvótamiðlun
SM kvótaþing stundar
kvótamiðlun og er
algjörlega óháð öllum
hagsmunaaðilum í
sjávarútvegi.
Skipa- og bátamiðlun
SM kvótaþing sér
um skipamiðlun á
öllum gerðum báta,
skipa og togara.
Ráðgjöf og þjónusta
SM kvótaþing veitir alhliða
ráðgjöf varðandi fjárfest-
ingar, fjármögnun og kaup
á veiðiheimildum og skipum
Sími 577 7010 SM Kvótaþing ehf.
Fax 577 7011 Þverholti 2
kvotathing@kvotathing.is 270 Mosfellsbæ
SM kvótaþing
Sjómannablaðið Víkingur - 39