Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1961, Síða 33

Náttúrufræðingurinn - 1961, Síða 33
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 77 lengd og hafa í mörgu líkst krókódílum vorra tíma, enda forfeður þeirra og þar með skriðdýranna yfirleitt. Sum hafa verið skæð rándýr og allt annað en friðsamleg er þau þrömmuðu um í rökkur- heimum sínum — hinum þöglu frumskógum steinkolatímabilsins. Þegar liér var kornið sögu, höfðu nokkur skordýranna náð þeim inikla áfanga í þróun sinni, að geta flogið. Þess er áður getið, með hvaða hætti vængirnir tóku upphaflega að myndast. Nú voru þeir orðnir að öflugum líffærum, sem gerðu viðkomandi dýrum mögu- legt að svífa um að vild. Þetta var stórkostlegur sigur í framvindu lífsins og mikil tíðindi máttu það teljast, þegar fyrstu flugdýr lieims- ins hófu sig á loft. Á steinkolatímabilinu voru sum þessara fljúgandi skordýra orð- in stórvaxin í rneira lagi. Þá svifu um loftið drekaflugur, sem höfðu 70 cm vænghaf og voru þar með stærstu skordýr, sem nokkurn tíma hafa borist um á vængjum eða yfirleitt verið til. Þegar steinkolatímabilið hafði staðið með miklum blóma öld fram af öld, eða um 80 milljónir ára, hófust enn tímar mikilla umbrota á yfirborði jarðar, sem höfðu örlagaríkar afleiðingar fyrir gróður og dýralíf. í upphafi permtímans risu miklir fjallgarðar víða um heim. Fenjaflákarnir lyftust og vötn streymdu til sjávar í stríð- um straumum. Við það þornaði sá voti jarðvegur, sem var hinum bohnjúku trjám lífsnauðsynlegur til viðhalds og þroska. Og þar með voru örlög þeirra ráðin. Þau hnigu til foldar livert af öðru og grófust undir farg nýrra jarðlaga, þar sem þau, ásamt gróðurleifum alls steinkolatímabilsins, urðu um síðir að steinkolum. Þetta mikla umrót hafði skiljanlega í för með sér stórvægilegar breytingar á lífskjörum þeirra dýra, sem gert höfðu frumskógana að dvalarkynnum sínum. Þau urðu nú að taka upp nýja lifnaðar- liætti til þess að bjarga sér frá yfirvofandi tortímingu. Blómatími þeirra var liðinn. Og senn urðu frumfroskarnir stóru að víkja að fullu fyrir niðjum sínum, skriðdýrunum. Hér verða þáttaskil í sögu lífsins. Upphafstímar þess eru óralangt að baki og fornöld jarðar, sem náði yfir 300 milljónir ára, hefur um það bil runnið sitt skeið á enda. Trjárisar steinkolatímans eru fallnir og nýjar tegundir teknar við. En sköpunarhæfni náttúr- unnar er þó hin sama og enn átti lífið eftir að sækja fram til sigurs. Brátt hófst nýtt stórveldi dýra til valda, meira og voldugra en þau,

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.