Náttúrufræðingurinn - 1961, Síða 25
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
119
Vegna rannsókna rninna á þörnngagróðri í liverum hér á landi,
hefur leið mín nokkrum sinnum legið til Hveravalla, lyrst 1944,
en síðast 1960. Eru hverirnir á Hveravöllum sérstaklega hentugir
til slíkra gróðurathugana, vegna þess, hve þeir eru ósnortnir og
hversu litlar breytingar verða á mörgum þeirra frá ári til árs. Hér á
eftir verður nú greint frá nokkrum athugunum, sem ég hef gert
þarna og talist geta frásagna verðar.
Hverirnir.
Fjöldi hveranna á Hveravöllum verður tæpast ákveðinn ná-
kvæmlega. Her það til að sum uppstreymisopin eru mjög lítil og
hverfa þau stundum, færast úr stað eða ný myndast á stuttum tíma.
I. mynd. Hveravellir. Hverirnir merktir númerum. Helztu einkenni 1957—
1959. I svigum merkingar Humlum & Tuxen og hitamælingar þeirra (1934),
þar sem öruggt er, að um sömu hveri sé að ræða.
1. Eyvindarhola. Ákaft sjóðandi. 93° C. (H & T: I, 92° C).
2. Öskurhóll. Stöðugt gufugos. (H & T: G, 97° C).
3. Bláhver. Kyrr, blár, 88° C. (H & T: C, 89.5-91° C)
4. Bræðrahver. Stöðugt gjósandi (H & T: A, 86° C).
5. Grænihver. Kyrr, grænn, 82° C. (H & T: D, 82—91° C).
6. Kyrr, tær (H & T: M, 93° C).
7. Laug, 21° C. Mikið af grænþörungum (H &T: L, 14.5—20.5° C).
8. Smáop. Sjóðandi.
9. Þrjár holur. Sjóðandi. 92—95° C. Hveraskánir við afrennsli.
10. Sjóðandi.
II. Sjóðandi. Upphaf hitalagnarinnar. Talsvert af hveraskánum í afrennsli.
12. Á kafi í möl. Sjóðandi.
13. Sjóðandi. 92° C.
14. Þrír hverir. Einn ákaft sjóðandi. 93° C.
15. Kyrr. 50° C. Mikil hveraskán.
16. Lítil hola. 97° C. Frárennsli langur lækur. Mikil hveraskán.
17. Lítil liola. 98° C. Frárennsli langur lækur. Mikil hveraskán.
18. Laug, volg. Mikið af grænþörungum.
19. Sjóðandi. (H & T: J, 92° C).
20. Kyrr. 64° C. Talsvert af hveraskánum í afrennsli.
21. Tveir hverir. Sjóðandi. 97° C.
22. Sjóðandi. (H & T: S, 97° C).
Þar sem Hveravellir eru í 600 m hæð er normal loftþyngd þar 711 mm og
suðumark vatns 98.1° C.
Kortið teiknaði Petrína Jakobsdóttir.