Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2000, Blaðsíða 9

Náttúrufræðingurinn - 2000, Blaðsíða 9
□ Grunnavíkurhreppur. Jökulfjarðamegin □ Grunnavíkurhr. Strandaiuegin □ Sléttuhreppur spillt □ Sléttuhreppur 1991 1992 1993 1994 1999A 1999B 3. mynd. Samanburður á fjölda grenja sem unnin voru eða hafði verið spillt ífriðlandinu árin 1991-1994 ogfjölda grenja sem fundust í ábúð árið 1999. Súlan merkt 1999A sýnir öll greni sem fundust íábúð 1999 en súlan merkt 1999B sýnir fjölda grenja íábúð afþeim grenjum sem voru þekkt fyrir 1999. -A comparison ofthe number ofoccupied densfound by fox hunters in 1991-1994 and the number ofdens confirmed to be occupied in 1999. 1999A shows all dens while 1999B shows only those dens known prior to 1999. Stærð óðala og þéttleiki grenja íábúð í FRIÐLANDINU Hornstrandafriðland er 580 km2. Miðað við 43-48 óðul í friðlandinu sumarið 1999 var meðalstærð þeirra 12,1-13,5 km2. Til saman- burðar má geta þess að meðalstærð óðala í Ófeigsfirði árin 1978-1979 var 12,5 km2 ± 5,3 km2 (Páll Hersteinsson og Macdonald 1982). Sumarið 1998 náðum við að mæla stærð óðals eins steggs í Hlöðuvík á Horn- ströndum með því að setja á hann radíó- hálsband og fylgjast síðan með ferðum hans (4. mynd). Stærð óðalsins var 7,5 km2, sem er nokkru minna en meðaltalið á svæðinu samkvæmt ofangreindum út- reikningum. Óðul á Hælavíkurbjargi og Hornbjargi eru sennilega enn minni. A hinn bóginn er ljóst að óðul í sunnan- verðu friðlandinu, sem snýr að Jökul- fjörðum, eru mun stærri enda eru þar hvorki fuglabjörg né teljandi reki af neinu tagi, auk þess sem þar er að jafnaði mun snjóþyngra að vetrarlagi. Dreifing grenja í ábúð sumarið 1999 styður það (2. mynd). Önnur leið til að mæla þéttleika óðala á svæði þar sem mikill meirihluti fæðu refanna á uppruna sinn úr fjöru eða sjávarhömrum er að reikna meðallengd strandlengju óðala. Strandlengja í Homstrandafriðlandi er 192 km. Að jafnaði eru því 4,0-4,5 km af strand- lengju innan hvers óðals. Munur er mikill eftir svæðum innan friðlandsins, eða 12,4 km/óðal að jafnaði í Grunnavíkurhreppi Jökulfjarðamegin, 3,1 km/óðal í Grunna- víkurhreppi Strandamegin og 3,0-3,5 km/ óðal í Sléttuhreppi. I Ófeigsfirði var strand- lengja óðala 7,2 ± 2,9 km árin 1978-1979 (Páll Hersteinsson og Macdonald 1982). Niðurstaða okkar er sú að 43-48 greni í ábúð í friðlandinu sumarið 1999 sé að öllum líkindum mjög nærri réttu lagi. Enn fremur teljum við að fjöldinn hafi ekki breyst að ráði milli áranna 1998 og 1999 og er þá litið til þess að á þeim 109 grenjum í Sléttuhreppi sem heimsótt voru bæði árin reyndust 20 greni vera í ábúð hvort ár. Því er líklegt að fjöldi grenja í ábúð á Horn- ströndum sé nú í jafnvægi og eigi ekki eftir 135
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.