Náttúrufræðingurinn - 2000, Qupperneq 28
Fréttir
LOF LAUSLÆTISINS
Það hefur verið hefðbundin skoðun að kvenkynið hafi síður en karlkynið hag af lausung í
kynlífi; að þar sem karlar ýmissa tegunda séu aflögufærir af sæði til margra maka, henti þeim
vel að sá því sem víðast, en kerlum þeirra, sem leggja mun meiri vinnu í hvert egg, sé hollast
að vanda valið á maka.
Eins og mörg önnur vígi karlrembunnar, riðar þetta nú til falls. Líffræðingar við háskólana í
Nevada og Houston hafa sýnt fram á að hjá einum af ættbálkum áttfætlna (en af þeim þekkjum
við best kóngulærnar), smádrekunum eða mosasporðdrekunum, Pseudoscorpiones, skili
lauslæti mæðranna sér í auknum fjölda afkvæma.
(Heitið smádreki bendir til smæðar dýranna, en þau eru aðeins nokkrir millímetrar að lengd.
Hitt íslenska heitið er dregið af því að dýrin Iifa í mosa, og raunar einnig í jarðvegi og undir
berki eða steinum. Smádreka er að finna í öllum hlutum heims, og um 2000 tegundum hefur
verið lýst.)
Karlinn afhendir kerlunni sæði í poka, sáðbera, sem hún ýmist hafnar eða þiggur. Hún þarf
samt ekki að taka til sín allt sæðið, en virðist ráða því hve mikið af því hún fær. Við það bætist
að hún getur geymt sæðið ævilangt og þarf því ekki að makast nema einu sinni. Samt virðist
slík hófsemd í kynlífi vera fátíð meðal smádreka.
í tilraun var nokkrum hundruðum kvensmádreka skipt í tvo hópa, og dýrin í öðrum hópnum
voru látin makast við sama karlinn tvisvar, en í hinum hópnum mökuðust kerlumar við annan
karl í seinna skiptið. Ekki greindist munur á magni þess sæðis sem kvendýrin í hópunum
tveimur tóku við.
I ljós kom að kerlurnar sem kynnst höfðu tveimur körlum nýttu sæðið betur. Þær eignuðust
32 prósentum fleiri afkvæmi en hinar. Skýringin er að hjá þeim fyrrgreindu var mun minna um
fósturlát, sem verður þegar ónæmiskerfi móður hafnar fóstri vegna ósamrýmanlegra erfða
foreldra.
Ekki er ljóst hversu víða í dýraríkinu þessi skýring á við. Jeanne Zeh, oddviti þeirra
rannsókna, sem hér hefur verið greint frá og voru nýverið birtar í Proceedings of the Na-
tional Academy ofSciences, telur að hún skýri fjöllyndi kvenþjóðarinnar hjá engisprettum og
skyldum skorkvikindum, og hjá gráspörvum. Engin afstaða er tekin til þess, hvort hún á við
um kokkálun meðal manna og annarra spendýra.
Polyandri. In praise of infidelity.
The Economist 4.9.1999.
TALANDI MYNDIR
Þótt sagt sé að ein mynd segi meira en þúsund orð, hafa áhorfendur til þessa orðið að túlka
orðin. Nú hyggst Kodak breyta þessu og hefur skrásett einkaleyfi á aðferð til að láta
ljósmyndimar tala. Ný, stafræn myndavél nemur hljóð í um 10 sekúndur eftir að mynd er tekin.
Þegar myndin er framkölluð í tölvuprentara birtist hljóðrásin sem rákamerki við neðri brún
hennar. Þar til gert tæki les merkið með innrauðum geisla og tjáir það í tali og tónum.
Patents: Talking pictures.
New Scientist9.10.1999.
Örnólfur Thorlacius tók saman.
154