Náttúrufræðingurinn - 2000, Qupperneq 29
Dýjaskóf eða
STJÖRNUMOSI
Marchantia polymorpha
HELGI HALLGRÍMSSON
Sumar lífverur eru snillingar í þeirri
list að villa á sér heimildir, að látast
vera annað en þær eru. í þeim flokki
er dýjaskófin. Hún er nefnilega mosi,
enda þótt hún líkist engu frekar en
venjulegri skóf. Skófir eða fléttur
(Lichenes) eru sambýlisverur sveppa
og þörunga og alls óskyldar mosum.
Heitið dýjaskóf er gamalt í málinu,
en Bergþór Jóhannsson mosafrœð-
ingur hefur að vonum ekki viljað
sætta sig við að kenna þennan mosa
við skófir og leggur því til að jurtin
verði kölluð stjörnumosi, af ástæðum
er síðar verða greindar.
■ NÁNARI LÝSING
Dýjaskófin er þunnvaxin, oftast samsett úr
mörgum borðalaga eða tungulaga flipum
(bleðlum) sem kvíslast aftur og aftur og vaxa
til ýmissa átta, oft hlið við hlið eða jafnvel
hver yfir annan að hluta til, og mynda þéttar
Helgi Hallgrímsson (f. 1935) er líffræðingur að
mennt. Helgi var forstöðumaður Náttúrugripa-
safnsins á Akureyri í aldarfjórðung og ritstjóri
Týlis - tímarits um náttúrufræði og náttúruvernd
- í 15 ár. Hann hefur mest fengist við rannsóknir á
íslenskum sveppum og vatnalífi og ritað bækur um
þau efni auk fjölda tímaritsgreina. Helgi er búsettur
á Egilsstöðum og fæst við ritstörf og grúsk.
hvirfingar eða óreglulegar breiður. Flipamir
eru vanalega 0,5-1 sm á breidd og 5-10 sm á
lengd en geta orðið allt að 20 sm langir og 2
sm breiðir.
Endar bleðlanna sveigjast vanalega
dálítið upp, svo og bylgjóttir jaðrarnir, en
brúnir þeirra eru samt jafnan niðurbeygðar.
Jurtin er oftast fagurgræn, leðurkennd og
nokkuð glansandi á efra borði, með rauð-
brúnum dröfnum, sem þéttast þegar aftar
dregur á þalið og mynda óglöggt miðrif á
sumum tegundum. Á enda flipanna eru
vanalega nokkrar grunnar skerðingar, sem
enda í brúnum dfl. Neðra borðið er ljósbrúnt,
með örþunnum, skæniskenndum flögum,
svonefndum kviðflögum, sem eru í nokkuð
greinilegum þremur röðum og öðruvísi
lagaðar í hliðarröðum en miðröðinni. Þar er
auk þess talsvert af glærum rótþráðum
(rætlingum), sem gegna því hlutverki að
festa plöntuna við undirlagið og jafnvel að
sjúga upp vatn.
■ SMÁVEGIS UM
SOPPMOSA
Dýjaskóf tilheyrir fylkingu mosa (Bryo-
phyta), nánar tiltekið flokknum Hepaticae,
sem Bergþór Jóhannsson kallar soppmosa í
nýjustu ritum sínum en hafa áður verið
nefndir lifurmosar (lifrarmosar) og hálf-
mosar á íslensku.
Náttúrufræðingurinn 69 (3-4), bls. 155-165, 2000.
155