Náttúrufræðingurinn - 2000, Page 86
Mestur hluti orkuauðlinda jarðar á upp-
runa sinn í sólarorkunni, þar á meðal vatns-
afl, kol, olía og gas. Einu orkulindimar sem
eiga uppmna sinn í jörðinni em kjamorka og
jarðhiti. Sjávarfallastraumar, sem örlítið hafa
verið nýttir sem orkulind, eiga uppmna sinn
aðallega í aðdráttarafli tunglsins.
Langmestur hluti orkunotkunar mann-
kyns fer í raforkuframleiðslu og samgöngu-
tæki. Af árlegri orkuframleiðslu í heiminum
nota Bandaríkjamenn um ijórðung, þótt þeir
séu ekki nema 5% mannkyns. Ef allt mann-
kyn neytti jafnmikillar orku og Bandaríkja-
menn væm óendumýjanlegar orkuauðlindir
sem nýta má á viðráðanlegu verði uppumar
á fáum ámm eða áratugum.
Af árlegri orkunotkun í heiminum (1990)
koma 38% ffá olíu, 30% frá kolum, 20% ffá gasi,
7% ffá vatnsafli og 5% frá kjamorku. Aðrir
oikugjafar komast ekki á blað. I Bandaríkjunum
em hlutfollin nokkuð svipuð. A Islandi em
þau hins vegar allt önnur (1. mynd). Hér ein-
kennist orkunotkunin af því að vera miklu
vistvænni en yfirleitt gerist. Olíunotkun fer
mest í samgöngutæki og fiskiflotann, jarðhiti
er mest notaður til húshitunar en einnig all-
mikið til raforkuframleiðslu og iðnaðar og loks
vatnsorka til raforkuframleiðslu. Þess ber þó
að geta að ofíu- og bensínnotkun hér á landi er
mjög mikil á hvem íbúa. Fyrir árið 1995 var hún
næstmest í heiminum, næst á effir Bandaríkj-
unum. Því má segja að það sem við Islendingar
vinnum upp með mikilli jarðhita- og vatns-
aflsnýtingu tapist af'tur með miklum akstri
einkabíla, flutningum og fiskveiðum.
■ jARÐOLÍA
Orðið jarðolía er hér notað í sömu merkingu
og orðið „petroleum". Það er vökvi og/eða
gas sem er blanda af margskonar kolvetnis-
samböndum af lífrænum uppruna. Vökvinn
nefnist hráolía (crude oil) en gasið jarðgas
(natural gas). Jarðolíu er yfirleitt að finna í
setlögum sem myndast hafa í sjó, þótt hún
hafi einnig fundist í landrænu seti. Efnasam-
böndin í hráolíu hafa mismunandi suðu-
mark. Með þrepasuðu má skipta henni upp í
mismunandi efni eins og asfalt, koppafeiti,
BANDARÍKIN
ÍSLAND
1. mynd. Orkunotkun í heiminum. Tölurnar
fyrir Bandaríkin og heiminn eiga við árið
1990 og eru frá Plummer og McGeary
(1993) og Pipkin (1994). Fyrir ísland eru
tölurnar fengnar frá Orkustofnun og eiga
við árið 1998.
smurolíu, brennsluolíu, steinolíu, bensín og
gas. Slík þrepasuða fer fram í olíuhreinsi-
stöðvum sem ef til vill væri einfaldara að
nefna olíuver.
Jarðolía myndast við efnahvörf sem
umbreyta Iífrænum leifum í setlögum, þegar
þau fergjast og hitna í 100-200°C. Ef jarðolía
212