Náttúrufræðingurinn - 2000, Blaðsíða 52
2. mynd. Hér má sjá þann hluta rifbeinsins sem varð eftir ímalarstálinu þegarþað brotnaði.
Þessi beinbútur, 15-20 cm langur og um 5 cm gildur, var sendur til aldursákvörðunar við
Háskólann íArósum íDanmörku. - The whalebone in the sediments at Stóra-Fellsöxl. This
part of the bone was radiocarbon-dated at the University of Aarlius, Denmark. Ljósm./
photo: Hreggviður Norðdahl.
egar Þorvaldur Thoroddsen
jarðfræðingur ferðaðist um
landið á ofanverðri nítjándu öld
fann hann og hafði fréttir af
beinum hvala og rostunga í jarðlögum á
landi, en þessara beinafunda getur hann
meðal annars í riti sínu Lýsing íslands og
Ferðabókum. Þá strax varð ljóst að slíkir
beinafundir segja okkur að einhvern tíma í
fyrndinni hefur afstaða láðs og lagar verið
nokkuð á annan veg en hún er á okkar
dögum. Frá þeim tíma, er dýrin drápust við
strendur landsins og bein þeirra grófust í
setlög strandarinnar, hefur landið risið úr sæ
og fornir sjávarbotnar orðið að þurrlendi.
Astæða þess að landið reis úr sæ er sú að
það hafði svignað undan fargi ísaldar-
jökulsins, svo mikið að allt núverandi lág-
lendi landsins lá þá mörgum tugum eða
hundruðum metra neðar en það gerir nú. Við
bráðnum ísaldarjökulsins dró úr fargi hans
og smám saman reis landið á ný og náði
núverandi stöðu sinni.
Af þessari ástæðu er almennt álitið að því
hærra yfir sjó sem bein finnast þeim mun
eldri séu þau. Þau yngstu eru líklega af
dýrum sem drápust á ströndum landsins
eftir að það byggðist, en þau elstu eru talin
vera frá lokum ísaldar og því mörgþúsund
ára gömul. ÖIl eru þessi bein úr sjávardýrum
sem enn lifa í sjónum kringum landið eða við
strendur grannlanda okkar.
Nú á tímum er hægt að ákvarða nákvæm-
lega aldur beina með svonefndri geislakols-
aðferð. Beinafundur, eins og sá sem varð í
malamámum austan í Akrafjalli 5. júní 1997,
varpar skýrara ljósi en áður á þær umhverfis-
breytingar sem urðu í lok ísaldar, þegar jökla
leysti af landinu og það reis úr sæ. Vitneskja
okkar um legu fjörumarka styrkist sem og
vitneskja okkar um aldur sjávarmarka og
hraða landlyftingar. Beinar rannsóknir á
beinunum sjálfum geta, auk aldurs þeirra,
gefið mikilvægar upplýsingar um forna áa
núlifandi hvala við ísland.
178