Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2000, Page 42

Náttúrufræðingurinn - 2000, Page 42
1. mynd. Louis Pasteur (1822-1895) 22 ára. Teikning eftir Lebayle. ■ deilur um eðli GERJUNAR Þannig var málum háttað undir lok 6. áratugarins þegar tveir þekktir franskir vísindamenn sneru sér af alefli að tilraunum til að sanna eða afsanna kenning- una um sjálfkviknun lífs. Annar þessara manna var virtur náttúru- fræðingur, Felix Pouchet, for- stöðumaður náttúrufræðisafns- ins í Rúðuborg, en hinn var Louis Pasteur (1. mynd). Pasteur var efnafræðingur að mennt, fæddur árið 1822, og vann til ársins 1855 eingöngu að efnafræðilegum rannsóknum. Þá hóf hann rann- sóknir á alkóhólgerjun og bland- aði sér í deilur um eðli gerjunar og orsakir. Þýski efnafræðingurinn Justus von Liebig hafði sett fram efnafræðilega skýringu á alkó- hólgerjun þar sem ekki var gert ráð fyrir þátttöku örvera í gerjun- arferlinu. Liebig taldi að orsaka- valdur gerjunar, „gerið“, myndað- ist í þrúgusaftinni en lifandi væri hann ekki (Farley 1977, Manches- ter 1995). Þegar hér var komið sögu höfðu hins vegar verið færð sterk rök fyrir því að gerið væri lifandi örvera og ýmsir aðhylltust nú þá skýringu að örveran ein orsakaði gerjunina. Fylgismenn efnafræði- legu skýringarinnar héldu þó fast við sitt og töldu fráleitt að hinar örsmáu, lifandi ger- frumur gegndu aðalhlutverki í gerjuninni. Þeim þótti óhugsandi að örverur gætu áorkað svo miklu. Má minna á orð Liebigs um annað ferli sem margir töldu nú að væri af völdum örvera. „Þeim sem halda að smá- sæjar lífverur valdi rotnun dýraleifa má líkja við barn sem heldur að það séu mylluhjólin í Mainz sem valda straumhraðanum í Rín“ (Dubois 1976). Hins vegargætu örverumar hugsanlega verið aukaafurðir gerjunarinnar, en þar með var umræðan komin inn á hið varasama svið sjálfkviknunar. Ef gerjunin orsakast á hinn bóginn af örveru, sem berst með loftinu yfir á vínþrúgumar, er sjálf- kviknunar lífs ekki þörf. Þeir sem aðhylltust það sem kalla má líffræðilega skýringu á gerjun voru því á varðbergi gegn kenning- um um sjálfkviknun lífs. Efnafræðingurinn Pasteur var einn af þeim. Pasteur hafði átt í deilum við Liebig og skoðanabræður hans um eðli gerjunar og hafði með tilraunum fært sterk rök fyrir hlutverki örvera í gerjun, ekki aðeins alkó- hólgerjun heldur einnig mjólkursýrugerjun. En eftir var að sýna fram á það á sann- færandi hátt að örverur gætu ekki myndast sjálfkrafa úr lífvana efni. Þrátt fyrir efasemdir vina og starfsbræðra sneri Pasteur sér nú að þessu viðfangsefni. Fyrsta grein hans um 168
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.