Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2000, Page 12

Náttúrufræðingurinn - 2000, Page 12
sennilega á bilinu 50-130 m (Melle og Skjoldal 1989), því þau þroskast tiltölu- lega hratt. Þroskunartíminn, þ.e. tíminn sent líður frá hrygningu og þar til lirfan kemur úr eggi, er háður sjávarhita (Corkett o.fl. 1986). Við suðurströnd íslands, þar sem yfirborðshiti í aprr'l og maí er um 5- 7°C, klekjast eggin eftir um 2-3 sólar- hringa en í kaldari sjó út af Norðurlandi (2-3°C) líða um 3-4 sólarhringar þar til lirfan skríður úr eggi. Nýklaktar rauðátu- lirfurnar synda strax upp til yfirborðs- laganna og halda yngstu lirfurnar sig aðallega í ljóstillífunarlaginu ofan 50 m dýpis, en eftir því sem þær verða eldri standa þær dýpra í sjónum. Fyrstu lirfu- stigin (NI-NII) geta ekki neytt fæðu heldur lifa á forðanæringunni í egginu (Corner o.fl. 1967), en þegar lirfan hefur þroskast í stig NIII byrjar hún að éta. Vaxtarhraðinn er bæði háður fæðuskil- yrðurn í sjónum og hitastiginu, en ef nóg er af æti vex lirfan hratt og hefur skelskipti á um 5-10 daga fresti (Carlotti og Radach 1996). Þegar rauðátan hefur þroskast í ung- viðisstig CIV og CV gerist annað af tvennu. Annaðhvort syndir hún niður í dýpri sjávarlög til vetursetu eða þroskast í stig CVI og verður kynþroska, hrygnir og getur af sér nýja kynslóð sem þroskast í vetursetustig (CIV og CV) síðar um sumarið. Ekki er vitað nteð vissu hvað það er sem ræður því hvor kosturinn verður fyrir valinu, en líklegt er að næringar- ástand dýranna, fæðuframboð og sjávar- hiti hafi þar áhrif. Eins og lýst verður síðar í þessari grein hefur a.m.k. hluti rauð- átunnar í hlýja sjónum út af suðurströnd íslands tvær kynslóðir yfir árið, enda má gera ráð fyrir að við það hitastig sem þar er að vorlagi eða fyrri hluta sumars (5-9°C) nái lirfur, sem klekjast úreggi í apríl, fullorðins- aldri eftir um tvo mánuði, eða í júní (Corkett o.fl. 1986). í kaldari sjó, eins og fyrir norðan land (2-5°C), tekur þroskunin frá eggi í fullorðinsstig hins vegar mun lengri tíma, eða 3-4 mánuði (Corkett o.fl. 1986), og þar verður því aðeins lítill hluti stofnsins kyn- þroska þegar á fyrsta sumri. ■ lóðréttar ferðir Árstíðacöngur Aður var nelnt að rauðátan þraukar veturinn í djúplögum sjávar. Þetta atferli, að færa sig niður á mikið dýpi á veturna, er einkennandi fyrir rauðátuna á öllu út- breiðslusvæði hennar og er talið hafa aðlögunargildi að minnsta kosti í tvennum skilningi (Kaartvedt 1996). í fyrsta lagi verði rauðátan síðui' bráð rándýra í myrkum djúplögum sjávar og í öðru lagi hægir á efnaskiptum í kuldanum og því endist forðanæringin lengur. Á árunum 1996 og 1997 voru gerðar athuganir á dreifingu rauðálu eftir dýpi suðvestur af íslandi á mismunandi árstímum (Ástþór Gíslason og Ólafur S. Ástþórsson 2000). Rannsóknir þessar voru liður í viða- miklum alþjóðlegum rannsóknum á vistfræði rauðátu í Norður-Atlantshafi. Á 6. ntynd eru sýndar niðurstöður fyrir rannsóknastöð djúpt suður af landinu. Þar sést að rauðátan hélt sig aðallega í tiltölulega köldum sjó (3- 7°C) á 400-1600 m dýpi yfir vetrartímann, einkum sem ungviðisstig CIV og CV. Senni- lega hafa dýrin byrjað að synda upp til yfirborðslaganna í febrúar, og í apríl, en þá voru mörg dýrin orðin kynþroska (CVIF og CVIM), var stór hluti stofnsins ofan 200 m dýpis. I júní, þegar flest dýrin voru olan við 100 m dýpi, höfðu bæst við ungviðisstig (CI-CIV) frá vorhrygningunni í apríl og maí (6. mynd). Það er athyglisvert að rauðátan virðist vakna úr dvala og hefja ferðalagið upp í yfirborðslögin á svipuðunt tíma, eða í febrúar-mars, á næröllu útbreiðslusvæðinu (Matthews 1968, Hirche 1996a). Það gæti bent til þess að aukin birta, samfara því að dag tekur að lengja eftir vetrarsólhvörf, hafi mest áhrif á það að rauðátan vaknar úr dvala og kemur upp í yfirborðslögin (Miller o.fl. 1991). Vitað er að daglengd hefur áhrif á það hvenær skordýralirfur vakna af vetrarsvefni og svipað kann að vera uppi á teningnum hjá rauðátunni. Vandinn við þessa hug- mynd er hins vegar sá að víða heldur rauðátan sig svo djúpt á veturna að birtubreytingar eru þar varla mælanlegar. 10

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.