Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2000, Síða 14

Náttúrufræðingurinn - 2000, Síða 14
7. mynd. Einfölduð mynd af lóðréttum dœgurgöngum rauðátu. (Eftir Wickstead 1976.) Þannig er t.d. ástatt í djúpinu utan við landgrunn íslands (sbr. 6. mynd) og í Noregshal'i (0stvedt 1955) þar sem dýpis- dreifing vetursetudýranna er svipuð. A báðum þessum hafsvæðum dvelst stór hluti rauðátustofnanna neðan 500 m dýpis yfir veturinn. Þangað berst mjög lítið ef þá nokkurt ljós og því er næsta ósennilegt að rauðátan þar geti skynjað þegar dag fer að lengja. Þess vegna er ólíklegt að ljósið stjórni árstíðagöngunum og verður að leita annarra skýringa, t.d. í lífeðlisfræðilegu ástandi dýranna. Þannig er hugsanlegt að þroskun kynkirtlanna hafi áhrif á hvenær vetrardvalanum lýkur(Hirche 1996a). Kyn- kirtlarnir byrja að þroskast á haustin, áður en vetrardvalinn hefst, og þeir halda áfram að þroskast meðan á dvalanum stendur (Tande og Hopkins 1981). Ef til vill vakna dýrin úr dvala þegar kynkirtlarnir hafa náð ákveðnum þroska. Þeir væru þá eins konar „líffræðileg klukka" sem stjórnaði því hvenær dvalanum lyki og ferðin upp í efri sjávarlög hæfist (Hirche 1996a). Þá kann fituforðinn, eða öllu heldur skortur á honum, einnig að vera áreitið sem liggur að baki því að rauðátan vaknar úr dvala (Kattner o.tt. 1989), en yfir vetrartímann gengur á fitu- forðann, m.a vegna þess að dýrin eru þá að þroska kynfærin. Nýjustu rannsóknir benda einmitt til þess að það ráðist af lífeðlis- fræðilegum ferlum meðan á vetrardvalanum stendur hversu lengi hann varir (Hind o.fl. 2000). Dægurgöngur Auk árlegra gangna upp og niður í sjónum ástundar rauðátan, eins og ttest önnur svifdýr, svonefndar lóðréttar dægurgöngur, sem eru fólgnar í því að hún dýpkar eða grynnkar á sér eftir tímum sólarhringsins (Marshall og Orr 1972) (7. mynd). Sérstak- lega er þetta áberandi síðari hluta sumars og á haustin þegar fer að verða dimmt um nætur. A daginn stendur hún þá yfirleitt tiltölulega djúpt í sjónum en í ljósa- skiptunum á kvöldin syndir hún upp í efri sjávarlög og um miðnætti má jafnvel finna 12
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.