Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2000, Page 24

Náttúrufræðingurinn - 2000, Page 24
1. mynd. Húsdúfa við Tjörnina í Reykjavík í mars 1998. Ljósm. Jóhann Óli Hilmarsson. ■ þrír flokkar dúfna Skipta má bjargdúfu í þrjá flokka (sbr. Walters 1980a): (1) hina eiginlegu (villtu) bjargdúfu, (2) skræpu og (3) húsdúfu (tamda dúfu). Ég nota orðið skræpa um það sem kallað hei'ur veriðferal á erlendum málum. Skræpan er í raun villtur fugl en á mismun- andi stigi afturhvarfs til náttúrunnar. Þótt hún sæki mjög að híbýlum manna er það ekkert annað en segja má um bjargdúfuna sjálfa, hrafninn og krdkuna (Sprensen o.fl. 1991). Grein þessari er ekki ætlað að sanna að skræpan sé villtur varpfugl á Islandi heldurbjargdúfan sjálf. Húsdúfur, Columba livia (domestica), skiptast í þrjár meginundirdeildir: A) Bréfdúfur, sem geta verið lítilsháttar ólíkar innbyrðis, a.m.k. ekki einsleitar, enda metnareftir hæfileikum en ekki útliti. B) Kjötdúfur (ásamt eggjadúfum), enn ólíkari innbyrðis en bréfdúfurnar. C) Skrautdúfur, sem skiptast aðallega í tvennt: a) litardúfur og b) formdúfur, er síðan skiptast báðar í óteljandi kyn (sem dúfnamenn nefna reyndar „tegundir". Þessar tömdu dúfur vil ég andspænis bjargdúfunni og skræpunni nefna annað- hvort alidúfu eða húsdúfu. Af þessum tveimur kostum er alidúfa lakari kosturinn þar sem heitið bendir um of í átt til kjöt- og eggjadúfunnar (sbr. aliönd og aligæs) en síðara orðið er hlutlausara, sbr. húsdýr. Húsdúfan lil'ir kóngalífi á Islandi víðast hvar, skrœpan lifir sömuleiðis góðu lífi víða en allir þeir sem um íslenska fugla hafa skrifað og að framan hafa verið nefndir virðast sammála um að bjargdúfan í merkingu greinar þessarar sé ekki til á Islandi, síst sem innlendur varpfugl. ■ DÚFURÁ AUSTURLANDl Upp úr 1970, er Friðrik Sigurbjörnsson staðfærir bók Hanzaks (1971) og getur um bjargdúfurnar við Vík í Mýrdal, var farið að bera á því umhverfis Norðfjarðarflóa og víðar þar fyrir norðan og sunnan, einkum 22

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.