Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2000, Page 31

Náttúrufræðingurinn - 2000, Page 31
— jarðvegur strandrof C V .. lón með breyti- .. legri vatnshæð ■ ' berggrunnur 1. mynd. Strandrof af völdum uppistöðulóna rí grómi landi. A sýnir árfarveg og jarðveg fyrir myndun lóns. B sýnir strandrof við lón á grónu landi. Jarðvegur er laus í sér og rofnar því auðveldlega við öldugang í lóninu og berst út í lónið. C sýnir hvernig breytileg vatnshœð í lóninu eykur enn á jarðvegseyðingu vegna strandrofs. Kvikasilfur úr lofti berst fyrst og fremst til jarðar með úrkomu en það getur líka fallið út beint, einkum þar sent land er skógi vaxið (Iverfeldt 1991). Eins og áður segir kemur kvikasilfur í lofti aðallega fyrir sem Hg°, sem er fremur torleyst í vatni. Við oxun á Hg° myndast kvikasilfursjón, Hg2+, sem hefur hinsvegar ríka tilhneigingu til að leysast upp í úrkomuvatni og því er meginþorri kvikasilfurs í úr- kornu á þessu formi (Fitz- gerald o.fl. 1994), þ.e. sent Hg2+ en ekki sem Hg° eins og í lofli. Kvikasilfur þarf því að oxast til að falla til jarðar með úrkomu og er talið að það gerisl með hvörfunt við hvarf- gjarnar santeindir á borð við O, (óson), H,0„ NO,, og OH í heiðhvolfinu (Lindqvist 1990; Munthe 1994). Taliðer að brennisteinsgastegundir í lolti, sem einnig valda súru regni, séu líka mikilvægir oxarar fyrir Hg°. Vegna þessa er mun meiri fylgni milli styrks kvikasilfurs í úrkomu og mengunar en milli styrks í lofti og mengunar. Gögn Lind- qvists (1990) endurspegla þetta, en þau sýna að styrkur kvikasilfurs í úrkontu í Sví- þjóð er um 100 ng/L syðst í landinu, þar sem loftmengun er veruleg, en minnkar eftir því sent norðar dregur niður í um 1 ng/L nyrst, fjarri iðnaðarsvæðum, þó svo að styrkur í lofti sé rnjög svipaður. A sama hátt og kvikasilfur safnast fyrir í vefjum dýra hefur það ríka tilhneigingu til að bindast lífrænu efni í jarðvegi. Lífrænu efni í jarðvegi má skipta gróft í tvo meginhluta, plöntuleifar og húmus, sem er samheiti yfir stóran hóp af lífrænum risasameindum sem myndast við niðurbrot á plöntuleifum. Það eru fyrst og fremst húmussameindir sent binda kvikasilfur í jarðvegi og því þroskaðri sem húmusinn er (smæni sameindir => meira yfirborð => fleiri hvarfstöðvar) því meira kvikasilfur getur hann bundið (Lindqvist o.fl. 1991). Það kvikasilfur sem fellur til jarðar með úrkomu á grónum svæðum situr því að verulegu leyti fast í hinum lífræna hluta jarðvegsins og losnar ekki þaðan fyrr en húmusinn brotnar niður eða jarðvegurinn eyðist með öðrum hætti (Johnson o.fl. 1991). 29

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.