Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 2000, Side 44

Náttúrufræðingurinn - 2000, Side 44
1. mynd. Kvenkyns œxlunarkerfi nefdýrs, pokadýrs og fylgjudýrs. (Pough o.fl. 1996.) öll eggin fara um hina vinstri og þar myndast um þau hvíta og skurn. Um getnaðarliminn fer aðeins sæði, ekki þvag. Eins og hjá poka- dýrum er limur nefdýrs klofinn í endann. Ymis sérkenni í beinagerð minna lfka á skriðdýr. Nefdýrin hafa samt ótvíræð einkenni spendýra: Húðin er þakin hári, hjartað skiptist í fjögur hólf og blóðið er jafnheitt, að vísu kaldara en í öðrum spen- dýrum, eða um 30° til 32°C. Neðri kjálkinn er aðeins eitt bein hvorum megin (mörg í skriðdýrum) og þrjú heyrnarbein í miðeyra - hamar, steðji og ístað (eitt í skriðdýrum). Heilinn er stærri en í jafnstórum skriðdýrum og um margt líkari heila spendýrs en skriðdýrs. Þess er þó að geta að í heila nef- dýra, sem og skriðdýra og pokadýra, vantar hvelatengsl (corpus callosum), kerfi tauga- brauta og stöðva er tengir hægra og vinstra heilahvel í fylgjudýrum. Nefdýr eru tannlaus og kjálkarnir með hornslíður eins og á fugls- goggi- Loks er þess að geta að nefdýrin hafa mjólkurkirtla og kvendýrin ala unga sína á mjólk. íslenska heitið spendýr á samt ekki allskostar við, þar sem engir spenar tengjast mjólkurkirtlunum en injólkin seytlar úr ótal smákirtlum og vætir feldinn á kvið móður- innar. Af nefdýrum lifa nú þrjár tegundir af jafnmörgum ættkvíslum, breiðnefur og tvær tegundir af mjónef. Breidnefur Breiðnefur, Ornithorhynchus anatinus (2. mynd), lifir í ám og vötnum austantil í Ástralíu og á Tasmaníu, 40-60 cm á lengd, þar af er skottið 10-15 cm. Nefið er eins og á önd, skottið llatt, líkt og á bjór, og fæturnir eru með sundfit á milli fimm táa með hvössum klóm. Að ofan er feldurinn dökk- gulbrúnn eða nærri svartur, Ijósari á bringu. Innan á ökklunum á afturfótum karldýrs eru sporar, tengdir eiturkirtlum. Ekki er Ijósl hvort dýrin nota eitrið til varnar, við veiðar eða í innbyrðis átökum um kvendýrin, sem hafa raunar eiturspora í æsku er rýrna svo. Breiðnefsstunga er afar kvalafull og sögð banvæn hundum en ekki mönnum. Þegar náttúrufræðingar á Englandi fengu í hendur fyrstu uppstoppuðu breiðnefs- hamina, við lok 18. aldar, héldu þeir að sýnin væru fölsuð, samsett úr pörtum margra dýra. Breiðnefir lifa í ám og vötnum og grafa tvenns konar greni í vatnsbakkana. Annars vegar eru bæli sem bæði kyn nota en karlarnir einir á útungunartíma. Hins vegar eru mun stærri og flóknari gangakerfi, allt að 42

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.